Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1936, Blaðsíða 11

Æskan - 01.04.1936, Blaðsíða 11
ÆSKAN 47 Kostaboð „ÆSKUNNAR" 1936 Nýir kaupendur að þessum árgangi fá í kaupbæti jólabókina 1935, og þeir, sem borga árganginn með pöntun, fá auk hennar söguna: „Galdrakarlinn góði" með 196 myndum. Ennfremur geta nýir kaupendur fengið síðasta árgang (1935) fyrir kr. 1,50, meðan upplag endist, en senda verður borgun með pöntun. Verðlaun næsta ár fyrir að útvega nýja kaupendur: Fyrir 2 nýja kaupendur: Einn eldri árgang blaðsins. — 5 — — Skrúfblýant, Minningarrit Templara eða Sögur Æskunnar 1. eða 2. hefti. —■ 10 — — Davíð Copperfield, Landnemar eða Bíbí. — 15 — — Skauta, skíði, svipu eða lindarpenna. — 20 — — Kaffistell (6 manna) eða bækur þær, sem taldar eru í þriðja flokki. — 25 — — Kaffistell (12 m.), Tjald (4 manna), íslenzka þjóðhætti eða Sögur frá ýmsum löndum (3 bindi). Verðlaun þessi geta því verið eftir eigin vali keppendanna. Sá, sem útvegar flesta nýja kaupendur, þó ekki undir 35, fær í verðlaun vasaúr eða myndavél. Pess er rétt að geta, að gamlir útsölumenn fá verðlaun fyrir þá kaup- endur, sem þeir bæta við núverandi kaupendatölu sína. Vinir „Æskunnar" um land allt, athugið! Breyting sú, sem var gerð á blaðinu um sfðustu áramót, hefur kostað útgáfuna geysilegt fé. Litprentun og myndamót eru dýr, og má gera ráð fyrir, að sá aukni kostnaður verði ekki undir 6000 krónum, og þó að breytingunni hafi almennt verið fagnað af kaupendunum, þá hafa ekki það margir nýir bæst við á þessu ári, að hinn aukni kostnaður hafi náðst upp. Þess vegna þurfum við að fá allmarga nýja kaupendur á þessu nýja ári, svo að blaðið geti staðið fjárhagslega á eigin fótum. Vinnið því af alefli að útbreiðslu á fallegasta og fjölbreytt- asta unglingablaði landsins. „ÆSKAN" kemur út mánaðarlega (12 sfður með litprentaðri kápu), og auk þess fá skuldlausir kaupendur tvöfalt jólablað. Jólablaðið er viðurkenning til skuldlausra kaupenda fyrir skilvfsi þeirra. 1« ÆSKAN'* koslar aðesns 3 krónur um árið. Gjalddagi er 1. júlí ár hvert. Utsölumenn fá 20°/o í sölulaun af 5 eint. minnst, en þeir, sem selja 20 eint. og þar yfir, fá 25 °/0. Nýir útsölumenn óskast. Utanáskrift: „ÆS K AN11, Pósthólf 14, Reykjavík

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.