Alþýðublaðið - 03.04.1923, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 03.04.1923, Qupperneq 2
2 Gyíingurinn í Hafnarfirði. ----- (Frh.) Steinn flutti langa romsu um það, að Kerenski hefði verið Gyðingur, og var það ein sönnun hans fyrir því að Gyðingar stæðu á bak við bolsivíka. Er þetta eitt af mörgum dæmum upp á, hve lítið Steinn vissi um það, sem hann var að tala um, því meiri hluta fundarmánna mun hafa verið kunnugt nafnið Kerenski, og vitað, að hann var ekki bolsi- viki, Kerenski var þvert á móti formaður stjórnar þeirrar, er bolsi- víkar steyptu, þegar þeir gerðu byltinguna 7. nóv. 1917. Þetta veit almenningur hér, þó hann fylgist ekki sérlega val með í því sem geiist erlendis. Keren- ski varð að flýja úr iandi, þegar hann steyptist frá völdum, og hefir orðið áð dvelja utan Rúss- lands síðan. Annað viðlíka hlægiiegt dæmi upp á fáfræði Steins um mál það, sem hann var þá að halda fyríriestur um, var, þegar hann sagði að Hurt Eisener hefði verið formaður ráðstjórnarinnar í Bajern. Ætti Steinn að bera saman hvenær Kurt Eisener var myrtur og hvenær ráðstjórnin var í Bajern, og sjá, svo hver útkoman yrði. Ýmsa Gyðingá taldi Steinn upp, sem- hann sagði að hefðu ýmist verið í ráðstjórninni í Bajern eða fylgjendur hennar. Var ónákvæmnin þar söm og annarsstaðar; t. d. nefndi hann meðal þessara fylgismanna dr. Rosenfeld, sem gaf í fyrra út ávarp móti bolsivíkum! Partur úr fyrirlestrinum var skýrsla, sem átti að sýna, að meiri hlutinn af æðstu stjórn- endum Rússlánds væru Gyðing- ar, Skýrsla þessi var borin til baka fyrir 2 — 3 árum, ekki af þvf, að bolsivíkum þætti minna varið í Gyðinga en áðra, heldur blátt áfram af því að hún var algerlega tilbúin eins og sögnin um þjóðnýtingu kvenfólksins. Steinn sagði, að állir ritstjórar f Rússlandi væru Gyðingar, en annar andmælandi bans þarna á fundinum sagðist þekkja vel ALÞYÐUBLA ÐIÐ þrjá ritstjórá t Rússlandi, og væri enginn þeirra Gyðingur; sögnin um, að allir ritstjórarnir væru Gyðingar, mundi því við- líka rétt eins og skýrslan, sem tyrr var nefnd. Um Lenin sagði Steinn, að hann mundi vera Gyðingur, eða væri hann það ekki, hvernig stæði þá á því að hann léti börn sín mæla á tungu Gyðinga marga klukkutíma á dag ? Þetta um börn Lenins sagði Steinn tvisvar á fyrirlestrinum, sem hann hélt i Reykjávík, og sagði það með svo miklum fjálg- leik, að lfkást var því, að hann vildi segja: Hvað þurfurn við framar vitnanna við? En svo hefir honum ekki þótt nóg að segja þetta tvisvar, því í Hafnarfjarðarfyrirlestrinum sagði hann þáð þrisvar. En hvaðan kom Steini þessi vitneskja um, hvaða mál börn Lenins töluðu? Þegar hann var spurður að því á fyrirlestrinum í Reykjavík, hvað mörg börn Lenin ætti, varð honum orðfáll. Þetta reyndi hann að bæta upp í Hafnarfirði með því að kalla það ábyrgðar- leysi, að hánn hefði verið spurð- ur slíkrar spurningar. Þó oft væri erfitt að sjá, hverjar væru heimildir Steins, þá Var það auðvelt hér, ,Þetta, að kalla það ábyrgðárleysi að reka hann í vörðurnar, það var of vitlaust til þess að vera frá honum sjálfum; það var auðséð, að þetta hafði hann trá Birni gamla með siðterðisbundna nátt- úrulögmálið. En endirinn á þessu bárna<- máli var hinn hraklegasti fyrir Stein. Annar andmælandi hans sagðist ekki vita neitt um það, hvort Lenin ætti börn, og skor- aði á Stein að segjá skýrt og skorinort, hvort hann þyrði að fullyrða, að hann ætti þau. En Steinn þagði við. Má slíkt kallast langt genglð, fyrst að þykjast vita, hvaða mál börn Lenins töluðu, og á eftir að þora ekki að fullyrða, að hann ætti nein. (Frh.) ííæturlæknir í nótt Ólafur Þorsteinsson Pósthússtræti. Hlníavelínr eru haídnar meðai annars til þess að afla tekná fyrir féiög, sem vinna að mannúðarmálum. Þær eru haldnar vegna þess, að ársgjöld télaganna eru svo íág, að þau nægja ekki til að greiða kostnað, sem af starfinu íeiðir. 1 vetur hafa að vísu verið haldnar margar hlutaveltur, en þó eru fleiti féiög, sem févana eru og þurfa að afla sér tekna. Eitt þeirra er unglingastúkan Unnur nr. 38, sem ákveðið hefir að halda núllalausa hlutaveitu, sunnudaginn 8. aprfl.' Hvað er unglingastúka? Aðalmarkmið þess félagsskap- ar er að venja unglinga á gott siðferði, reglusemi og bindindi, með öðrum orðum: afa upp nýta og dugandi þjóðfélagsborgara: Eg vona, að öllum sé ljóst, að meiri hætta er á, að ungling- lingar freistist til drykkjuskapar, síðán hin svo nefndu veiku vín hafaleyfilega verið fluttinnog seld, Og ég vona, að allir vilji vinna að því, að sem fœstir hneigist til drykkjuskapar, og það er aðal- markmið unglingareglunnar. Heit- ir hún á aðstoð allra að því. Starfrækslan kostar fé, því að ekki má leggja minni rækt við télagsskap unglingá en fullorð- inna. Ársgjald félaga er 1 kr. Fyrir það fá þeir jólahátíð með sæl- gæti og árshátíð — alt ókeypis—, og eru þá upp etnar hinar föstu tekjur; er þá eftir húsaleiga o. fl. »Unnur« telur nú 370 félaga, og er starf hennar í stuttu máli þetta: 1. Hún heldur fund hvern sunnudag kl. 10—12 f. m., 2. gefur út skritað blað, sem kemur út annan hvern fundar- dag, og skrita félagar greinar, en ritstjórar eru tveir piltar og stúlka, 15 árp gömul, 3. hefir komið upp sjúkrasjóði, sem notaður er til að gleðja fé- laga, sem sökum veikinda geta ekki komið á jólahátíðina, 4. komið upp jólasparisjóði, sem unglingar geta lagt í frá 10 aurum og fá svo útborg- að fyrir jólin alt það, sem þau

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.