Æskan - 01.04.1964, Side 8
ÆSKAN ------------------------------
orgin Skoblje í Júgóslavíu var að heita má lögð í
rústir og hundruð manna fórust í landskjálfta 26.
júlí 1963.
Hér birtast tvær svipmyndir frá landskjálftaborginni.
FYRIRBOÐINN
Einkennilegur fyrirboði hinna miklu tíðinda gerði
vart við sig hjá sautján ára gamalli stúlku, sem bjó hjá
foreldrum sínum í fornfálegri, þriggja hæða byggingu í
Svipmyndir.
Skoblje. Herbergi stúlkunnar var á þriðju hæð, en íbúð
fjölskyldunnar að öðru leyti á hæðinni þar undir.
Um kvöldið, klukkan ellefu, fimmtudaginn 25. júlí,
varð stúlkan allt í einu gripin miklum ótta við að sofa
ein í herbergi sínu, en þar hafði hún sofið allt frá 10 ára
aldri. Hún varð óróleg og gekk niður til foreldra sinna
og fór fram á að fá að sofa þar niðri þessa nótt. Og það
gerði hún. Morguninn eftir gjöreyðilagðist þriðja hæð
hússins í landskjálftakippnum. Má líklega telja að stúlk-
an væri nú ekki í hópi lifenda, ef hún hefði sofið í her-
bergi sínu, eins og venjulega, þessa örlagaríku nótt.
DÝRIN
Vísindamenn halda því fram að dýrin finni það á sér
þegar búast má við jarðskjálftum.
Myndin sýnir götu eina í borginni Skoblje í Júgóslavíu cftir
skjálftana 26. júií 1963.
Klukkan eitt, aðfaranótt föstudagsins 26. júlí gerðúsl
dýrin í dýragarði Skobljeborgar allt í einu óeirin °\
byrjuðu að öskra og láta öllum illum látum. Fyrst hey^
ist angurvært en kvíðablandið garg ástralsks sléttudýrs, sí
an lét gamli Saint Bernhardshundurinn í sér heyra og sVÍ)
hvert dýrið af öðru, þar til tugir dýra öskruðu í eint11'1
kór, livert með sínu nefi. Og ljónið tók að lemja
inu við búrvegginn, aparnir stukku um eins og óðir v#1'^
og stóri, þunglamalegi flóðhesturinn gerði tilraun til 11.
stökkva yfir hálfs annars metra hátt grindverk. Þessi
héldust þar til landskjálftinn skók jörðina.
Meðan á þessu gekk, sváfu íbúar Skobljeborgar vírt'
grunlausir um þá hættu, sem yfir vofði.
Vitið þér, að í greifadæminu GIou-
cestershire í Englandi fórust fyrra
misserið 1963 af umferðarslysum 54
börn á leið í skóla?
Vegna þess láta menn nú öll skóla-
börn í greifadæminu fá silfurbönd
á bandlegg, sem lýsa i myrkri.
Vitið þér, að í ýmsum innbrotum
ganga þjófar fram hjá mjög auð-
fengnu þýfi?
I'etta skeði í bænum Lille í Frakk-
landi, þar sem tveir ])jófar brutust
inn i vefnaðarvöruverksmiðju. Þeir
hurfu sem hraðast, þegar það kom
í ljós, að verksmiðjan framleiddi að-
eins röndótta fangabúninga.
¥ITI» ÞÉR?
116