Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1964, Blaðsíða 27

Æskan - 01.04.1964, Blaðsíða 27
ÆSKAN J^rauinur Steve Reeves, a?S verða stór og sterkur, rættist, og hann fékk þá ”«i'afta í köggla“, sem gerðu hann að þeim ”i'isa“, Sem hann er í dag. Enn þann dag 1 dag er hans eftirlætisiþrótt líkamsrækt <lg bjálfun og útreiðatúrar og hestamennska °g aldrei kann hann eins vel við sig, eins (lg þegar hann er á hestbaki úti í guðs- ®r®nni náttúrunni með góðum félaga. Þá j* Steve í essinu sínu. Hann á stórt hest- ns og marga góða gæðinga nálægt Róma- ’0|'g. þar sem hann er staddur nú sem endur vegna atvinnu sinnar. Steve Re- ^es er nú 38 ára gamall og lifir rólegu . 1 ' „horginni eilífu“ — Rómaborg. Þar ^ ta ílestar kvikmyndirnar, sem hann hef- 'eikið í, verið teknar. Steve Reeves er ,*eddur í Montana 21. janúar 1926 en flutt- S til Kaliforníu um tvitugt. Ita"n vakti fyrst athygli á sér á sól- *nsströndinni „Santa (Ki tiiiu á svokallaðri Monica“ i Kali- „Muscle Beach“ k ’etta-ströndin). Á þessari strönd mætast ^-J'darískir unglingar, sem vilja „stæla vana“ — vilja verða „stórir og sterkir“ sólbrúnir. Þar skin sólin allan guðs- la ^ agan daginn. Þar mætti Steve kvikmynda- skornunum og fékk liugmyndina — og nú a* ég segja ykkur, hvað skeði: Steve fékk lítið lilutverk í kvikmynd i Holly- wood. Ferðaðist hann síðan um með leik- konunni Mae West, sem var heimsfræg kvikmyndaleikkona, og flokki hennar viðs- vegar um Bandaríkin og hafnaði svo á Broadway í New York, sem er draumur allra leikara. Síðan atvikaðist það svo, að ítalskur kvikmyndastjóri sá þennan 180 cm háa fallega og myndarlega mann og ákvað þá á stundinni að íela honuin aðal- hlutverkið í kvikmyndinni „Herkúles", sem hann var þá að undirbúa, og þar með varð Steve heimsfrægur. Hann fékk eitt hundrað og fimmtiu þúsund dali fyrir vikið. (Nær sex og hálfa milljón isl. kr.) Hann hefur leikið i fimm kvikmyndum. Þær eru: Herkúles, Siðustu dagar Pompei, Hetjan frá Maraþon, Risinn Golíat, Morgan sjóræningi og nú er í smíðum ævintýra- myndin Þjófurinn frá Bagdad með Steve í aðallilutverkinu. Steve Reeves hefur hlotið heiðursnafn- bætur, svo sem: „Bezt vaxni maður Banda- ríkjanna", Bezt vaxni maður heimsins" og „Herra Alheimur". Steve hefur fallega söngrödd, og þegar hann er spurður um framtíðina, segir liann: Ég er þakklátur fyrir allt það góða, sem mér liefur fallið í skaut. Ég lief ákveðið markmið í huga — framtíðaráætlun. Ég hef ekki mikinn áhuga á kvikmyndum, né því lifi, sem leikarar lifa, ég vil aðeins starfa sem leikari í tvö ár í viðbót. Eftir þann tíma langar mig til að kaupa nautabú i Oregonfylki í Banda- rikjunum. Ég er enn kúreki í lijarta mínu, og hrosandi hætir liann við: Maðurinn bjó til borgina, en guð bjó til sveitina. Ég, sem skrifa þessar linur, vil bæta því við, að Steve er náttúrubarn, sem elskar að vakna við sólarupprás á morgnana með fuglun- um, fagna nýjum degi. Hann elskar dýrin, blómin og náttúruna. Steve er alger bind- indismaður og kann ekki við þetta gervilif, sem leikarar lifa. Steve býr sem stendur í fallegri ihúð í Rómaborg, en hann á lít- inn húgarð fyrir utan horgina, og þar geymir hann hesta sina, arabiska gæðinga. Steve er grænmetisæta — hann er kall- aður „kreddukóngurinn“ á meðal leikara. En Steve segir: ég varast offitu, maður verður að passa línurnar. Sannleikurinn er nefnilega sá, að Steve elskar dýr og getur ekki hugsað sér að borða kjötið af þeim. Hann er alger bindindismaður og hefur aldrei smakkað áfengi eða tóbak og æfir sig i klukkustund á hverjum morgni. Steve Reeves er maður, sem aldrei gleym- ir vinum sínum, og hann er þakklátur öll- um þeim, sem hafa reynzt honum vel á frægðarhrautinni. Steve er skyldurækinn sonur, og honum þykir svo vænt um móð- ur sina, að hann vildi helzt fljúga frá Róm til Bandarikjanna í helgarfrium sinum til að heimsækja mömmu sina, og það lýsir hczt innræti hans. Bjarni Sveinsson. Kúrekinn sem varð kvikmyndastjarna. 135

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.