Æskan - 01.11.1966, Blaðsíða 31
Þær syngja og lcika á gítara.
Stúlkurnar í KFUK á fundi.
Nokkrar stúlkur sátu kyrrar og
prúðar og hlustuðu á ungan stúdent,
sem sagði frá og hlýddi þeim yfir
„kverið" þeirra. Þær voru við ferm-
ingarundirbúning og ungi maðurinn
aðstoðaði prestinn þeirra með því að
taka þær til spurninga. Stúlkurnar
hlustuðu með athygli. Þær höfðu
heyrt svo margt nýstárlegt um þenn-
an unga rnann. Hann safnaði saman
drengjum á fundi, þar sem ýmislegt
skemmtilegt og óvenjulegt fór fram.
Friðrik hét hann, Friðriksson. Stúlk-
urnar vissu, að fyrir örfáum mánuð-
urn stofnaði Friðrik félag með drengj-
unurn. Á fundum félagsins var sung-
ið ntikið, farið í leiki, sagðar sögur
og hlustað á Guðs orð.
Stúlkunum leiddist, að þær skyldu
ekki geta verið með á þessum fund-
um. í lok spurningatímans gaf því
ein stúlknanna merki. Hana langaði
að spyrja að nokkru.
árum, eða frá stofnun þess í apríl
1899. Og nú starfar það í mörgum
deildum fyrir ýmsan aldur á fjórum
stöðum í Reykjavík, og einnig í Hafn-
arfirði, á Akureyri, Akranesi og í
Vestmannaeyjum. Auk þess rekur það
sumarbúðir í Vindáshlíð í Kjós. Þar
hefur stór hópur stúlkna dvalið þrjá
mánuði á hverju sumri frá því árið
1948. Nokkur ár þar áður höfðu
stúlkurnar tjaldbúðir bæði í Botns-
dal í Hvalfirði og suður í Straumi.
Ótal telpur og stúlkur hafa gengið
í KFUK eða dvalið í Vindáshlíð.
Margar þeirra eru nú fullorðnar kon-
ur, sem hafa tekið við stjórn félagsins
af séra Friðrik Friðrikssyni. Stúlkurn-
ar korna enn saman, áhugasamar og
iðnar. Þær syngja, fara í leiki, sauma
og lilusta á sögur, fai'a í ferðalög,
föndra og margt fleira. En fyrst og
fremst læra þær að elska Jesúm Krist,
sem lét líf sitt á krossi fyrir þær.
K. F. U. K.
Hvað er það?
Hún vildi vita, hvort stúlkurnar
gætu ekki fengið að eignast sitt eigið
félag, eins og drengirnir. Gæti hann
ekki líka stofnað félag fyrir þær?
Friðrik Friðriksson varð hálffeim-
inn við þessa spurningu og vissi varla,
hvað gera skyldi. Þó varð Jtað úr, að
hann stofnaði félag með stúlkunum
undir nafninu kristilegt félag ungra
kvenna, KFUK. Stúlkurnar voru
mjög áhugasamar, enda hafði félagið
þeirra markmið: að ávinna ungar
stúlkur fyrir Jesúm Krist.
KFUK hefur vaxið og dafnað á 67
Sumarbúðirnar í Vindáshlíð.
Þar una þær sér við útileiki