Alþýðublaðið - 05.04.1923, Page 1
Góður félagi er ná fállinn í
valinn — í orðsins bezta skiln-
ingi góður og efnilegur drengur,
aðalsmaður.
JÞair eru margir, sem hárma
Jónas heitinn Steinsson, er lézt
í gær eftir margra mánáða dauða-
stríð. Ég hatði að eins þekt
hann persónulega nokkra mán-
uði áður en hann lagðist bana-
leguna, en af afspurn Iengt áð-
ur. Hann varð að eins rúmlega
tvítugur, 'en skjöldur hans var
fágaður og hreinn, er hann lézt.
Þótt kunningsskapur okkar yrði
svo stuttur, þótti mér vænt um
Jónas, því hjá honum fann ég
margt gott og heilbrigt, — meira
en hjá flestum ungum mönnum
sem ég hefi kynst. Ærlegur og
ábyggilegur drengur, fámáll, en
fylginn sér.
Hann var meðalmaður á hæð,
þrekvaxinn og í alla staði hinn
gervilegasti, afburðamaður að afli.
Snemma á síðastliðnu hausti
lagðist hann í lífhimnubólgu. Lá
hann fyrst heima mjög þungt
haldinn. Síðan var hann fluttur
á Landákotsspítala. Um tíma
hrestist hann, og var von um,
að hann myndi verða albata, en
nú hefir sú von að engu orðið.
Það er hart að sjá á bak
góðum drengjum. Jónas var
í hóp hinna beztu.
Hann var meðlimur í Iðn-
nemafélaginu, í stjórn þess og
meðlimur Jafnaðarmannafélags-
ins. Ég minnist sérstaklega skemti-
farar þess félags til Vífilsstaða
síðastliðið sumar. Á heimleiðinni
vorum við í fararbroddi, Jónas
heitinn og ég, og bárum tvo
rauða fána. Mátti þá segja, að.
sópaði að honum, Jónasi vini
mínum, er hann bar hátt fána
alþýðunnar.
Foreldrar hans eru þau Steinn
Jónsson sjómaður og kona hans
Þorbjörg Þorbjarnardóttir, en
systkini Ingibjörg (kona Ingólfs
Jónssonar) og Steinþór. Hefir
mér þótt mest allra eiginleiká
bera á drengskap hjá þeim syst-
kinum.
Eitt mega ástvinir Jónasar
heitins vita og gleðjast af, að
vinir hans munu ávalt hata í
hávegum minningu hans.
Þökk fyrir vináttu mér sýnda,
Jónas Steinsson!
31. marz.
Rendrilc J? S. Ottósson.
Eríenð sínskejtL
Khöfn, 2. apríl.
Bannið í Tyrklandi.
Frá Mikiagarði er símað:
Fullnaðaráfengisbannið er gengið
í gildi frá í dag. Refsiákvæði
laganna eru mjög harðvítug.
Þannig er hegnt fyrir drykkju-
skap með 30 stafshöggum.
Krupps-siniðjiiraar hertcknar.
Frá Berlín er sínmð: Allar
verksmiðjur Kiupps voru her-
teknar í gær af miklu liði frönsku.
Verkamennirnir hafa lýst yfir
24 tíma mótmæiaverkfalli.
Pantið Evenhatarann í síma 200
eða 1269.
UrWllfOSS
fór frá Kaupmannahöfn í gær-
kveldi, 4. ápríl,
Lagarfoss
er í Kaupmannahöfn, fer þaðan
10. apríl austur og norður um
land til Reykjavíkur.
Goðafoss
fer héðan í fyrra málið kl. 10
vestur og norður um land til
útlanda.
Esja
fer væntanlega frá Kaupmanna-
höfn 13. apríl til Reykjavíkur,
byrjar ferðir sínar 24. aprílvestur
og norður kringum land.
? illemoes
fer héðan að forfallalausu 25.
apríl til Hull og Leith (í staðicn
fyrir Lagarfoss 11. ferð) og
tekur fi3k til útflutnings til
þessara staða, eins og líka til
seDdingar áfrám > til Miðjarðar-
hafsins.
Gefid út f&f Alþýdnfiokkanm
1923
Fimtudaginn 5. apríl.
75. tölubláð.
Jónas Steinsson.
Spanskar nætur
verða leiknar vegna fjölda margra áskorana á fiistu-
dagiim 6. þ. m. kl. 8 stundvfslega. Aðgöngumiðar
seldir í Iðnó fimtudag og föstudag kl. 10— 1 og eftir 3
báða dagana.
ímsar breytin'garl