Alþýðublaðið - 06.04.1923, Síða 1
Handaskol.
IÍÚ85iæðisHiáiSð })vælt og
ruglað og drepið að lokniim
tveim nmræðum.
í gærkveldi var til c. umræðu
í bæjárstjórninni frumvarp það
til reglugerðar um húsnæði, sem
verið hefir þar á döfinni síðan
fyrri part vetrar og korna átti í
stáð húsaleiguiaganna.
Éins og kunnugt er, hafði
húsnæðisuefnd klofnað um málið,
og lagði hún á sínum tíma tvö
frumvörp fyrir, bæjarstjórnina,
annað frá meiri hluta nefndar-
innar, borgarstjóra, Guðm. Ás-
bjarnarsyni og IÞórði Bjarnasyni,
en hitt frá minni hlutanum, Pétri
Magnússyni og Héðni Valdi-
marssyni. Niður&t..ðan varð sú
við i. umræðu, að samþykt var
að leggja frunívarp minni hlut-
ans til grundvallar við frekari
meðferð málsins.
2. umr. var síðan frestað lengi,
og var því borið við af borgar-
stjóra, að það væri gert tii þess
að bíða eftir breytingartillögum,
er bæjarfulltrúar hefðu ætlað sér
að koma með. En sannleikurinn
mun vera sá, að borgarstjóra
hafi misiíkað, að frumvarp minni
hlutans var samþykt, og viljað
koma því fyr.r kattarnef, enda
fór svo, að ekki komu breyt-
ingartillögur fram frá öðrum en
honum, ög fóru þær yfirleitt í
þá átt að umsteypa frumvarpinu
áftur og gerá það sem líkast
frumvarpi meifi hlutaus. Hús-
næðisnetnd klofnaði enn um
rnálið, og vildi meiri hlutinn að-
hyllast állar breytingartillögur
borgarstjóra, en minni hlutinn
samþykkja þær þeirra, sem til
bóta voru, en fylgja að öðru
leyti frumvarpi minni hlutans.
Álöfuðmunurinn fólst í því, að
borgarstjóri vildi láta vera hægt
að segja upp íbúðum, þótt leigu-
taki stæði í fullum skilum, en
það myndi hafa það í för með
sér, að tilgangur reglugerðar-
innar, að koma í veg fyrir okur
á húsaleigu, yrði að engu.
Umræður urðu langar, og
kom greinilega fram í þeim, að
nauðsynlegt væri að haldá því
meginatriði húsaleigulaganna, að
ekki mætti segja upp húsnæði,
ef leigutaki sta?ði í skilum með
húsaleigu.
Undir umræðuuum komu fram
breytiugartillögur írá minni hluta
nefndarinnar við þær greinir, er
að þessu lutu, en fóru í þá átt
að gera þær aðgengilegri. Enn
fremur bar Þórður Sveinsson
fram breyliugai tillögu um það,
að miða húsaleigu við fasleigna-
mat. Ólaíur Friðrik.S'-'on bar fram
tiliögu um, að það skyldi varða
uppsögn, ef óleyfilega væri farið
með vín í íbúðum.
Við atkvæðagreiðsluna leit í
fyrstu svo út, sem ofan á myndt
verða stefná minni hlutans; voru
feldar með nafnákalli breytingar-
tillögur borgarstjóra um uppsögn.
En eftir að fallið hafði tillaga
Þórðar Sveinssonar, hættu lækn-
arnir að greiða atlcvæði með
minni-hluta-mönnum. Varð það
til þess, að við síðari hluta at-.
kvæðagreiðslnnnar náðu sam-
þykki ýmsar af tiilögum borgar-
stjóra, sem minni hluti uefudar-
innar vildi ekki fallast á. Vildu
minni-hluta-menn þá visa málinu
aftur til nefndar lil athugunar á
því, hvort breytingarnar gætu
samrýmst, en það var felt, og
að lokum var fiumvarpið fplt
með áorðnum breytingum með
6 : 6 atkv. að viðhöfðu nafna-
kalli. Móti frv. voru: Bj. ÓlafsS.,
Guðm. Ásbj., Gunni. Claessen,
Pétur Hulldórss., Þórður Bjarna-
Eramhald á 2. dálki 4. síðu,
Grefid út af Alþýöufloklnmin
1923
Föstúdaginn 6. apríl.
76. tölubláð.
H 1 j ó m 1 e i k a
heldur
prðf. Sv. Sveinbjörnsson
í Goodtemplarahúsinu í Hafnarfirði laugardaginn 7, apríl n. k. kl. 8Y2
síðdegis með aðstoð háskólastúdenta-kórsins og Pórarins Guðmundssonar.
Aðgöngumiðar á 2 krónur seldir í bakarabúðum Magnúsar Böðvafs-
sonar og Garðais á laugardaginn og við innganginnn.
Húseignin
nr. 27 vlð þingholtsstrætl, með tilheyrandi lóð, íæst til kaups
11 ú þegar.
Upplýsingar um olgnina, rerð og greiðsiuskilmála gefur
Aðalsteinn Eristinsson, Baldursgðtu 11 (síuii 1287).
Fuiltrúaráðsfundtir
á laugardagiim 7. þ. m. kl. 8 síðdegis.