Æskan - 01.11.1968, Síða 15
1. Pétur litli hefur lokiö við að búa til
myndarlegan snjókarl, og stendur nú á
kassa meðan hann setur stóra gulrót í stað-
inn fyrir nef á meistaraverk sitt. — 2. Þegar
Pétur litli kemur inn í stofuna, heyrir hann
að sagt er f veðurfregnum, sem einmitt
þessa stundina eru lesnar upp í útvarpið:
„Kólnandi veður og mikið frost í nótt“.
Pétur litli stanzar við og hlustar, og segir
svo um leið og hann fer aftur í frakkann:
,,Þá er mér ekki til setunnar boðið, og betra
að byrja sem fyrst.“ — 3. Pétur litli er svo
ungur og heldur að nú verði snjókarlinum
kalt. Hann ræðst í það að baksa honum
inn í húsið. — 4. Ekki nemur Pétur litli
staðar með snjókarlinn fyrr en hann hefur
komið honum fyrir við skíðlogandi arininn.
Pabbi hans tekur ekki eftir neinu og sezt
í stólinn með kvöldblaðið sitt. — 5. Loks
rennur Ijós upp fyrir Pétri litia, að líklega
liði snjókarlinum bezt úti í frostinu. Pabbi
hans vaknar við vondan draum, þar sem
hann er farinn að vökna heldur betur í fæt-
urna, og heldur í fyrstu að vatnsrör hafi
sprungið. — 6. Pípulagningamaðurinn er
kvaddur á vettvang, og þegar þeir pabbi og
pípulagningamaðurinn koma inn í stofuna
sjá þeir fljótt hvað um er að vera. Snjókarl-
inn hans Péturs litla hafði bráðnað í hitan-
um og myndað allt þetta vatnsflóð í stof-
unni. Pétur litli var svo mikill kjáni, að vita
ekki að snjókörlum líður bezt í frosti.
krans úr baldursbrám lianda honum til að hafa urn
hálsinn þegar hátíð var. Enginn úlfur í veröldinni átti
betri daga eða var hamingjusamari.
Þegar þessi breyting til batnaðar var orðin á högurn
borgarbúa, þeir gátu sofið í friði á nóttunni, skógarhöggs-
mennirnir voru óhræddir við vinnu sína og gátu höggvið
trén, barnakennarinn var ekki nærri eins grobbinn og
áður og meira að segja hann fyrirgaf úlfinum, þó hann
hefði gert hann að athlægi, hélt Frans leiðar sinnar. Allir
í borginni voru glaðari og betri en áður en hann kom.
Hann hélt áfram að ferðast um Norður-Ítalíu og kenndi
bæði mönnum og dýrum að vera góð. Það er sagt að
enginn maður hafi verið líkari Kristi en hann, og þegar
hann dó var hann gerður að dýrðlingi og kallaður heilagi
Frans. Ennþá eru þeir margir, sem biðja til hans, ef
þeini liggur eitthvað á hjarta, því jafngóður maður og
Frans lilýtur að vera nærri Guði í himnaríki og getur
því skilað til hans smáræði, sem lítil manneskja kemur
sér ekki að því að segja við svo háttsetta persónu.
Vilborg Dagbjartsdóttir endursagði.
443