Æskan - 01.11.1968, Síða 24
.1 /
Rauðhetta.
Leikendur: Rauðhetta, mamma, skógarvörður,
úlfuririn, þröstur og tvær vinkonur.
1. Heimili Rauðhettu.
Mamma (býr út böggla, kallar):
Rauðhetta!
Rauðhetta: Já, mamma mín.
Mamma: Skógarvörðurinn var að
koma. Hann sagði, að amma væri las-
in. Ég þyrfti að koma þessari körfu
til hennar. Það er í henni jólakaka,
kaffi og sykur, hangikjötslæri og
smjörskaka. Heldurðu, að þú treystir
þér til að fara með hana til ömmu?
Rauðhetta: Já, mamma mín, mér
þykir svo dæmalaust gaman að fara
gegnum skóginn og til ömmu.
Mamma: Gakktu eftir brautinni og
farðu ekki út af henni, þá er engin
hætta á ferðum. Úlfurinn hefur ver-
ið flæmdur burtu, svo að hann kem-
ur ekki fyrst um sinn.
Rauðhetta: Og þó hann kæmi, þá
yrði ég ekkert hrædd við hann. Hann
yrði hræddur við mig. Ég sem er orð-
in stór stúlka.
Mamma: Hér er nú karfan, og hér
er bréf til ömmu. Og segðu henni,
að ég komi bráðum að finna hana, og
að ég óski henni góðs bata.
Rauðhetta: Vertu blessuð og sæl,
mamma mín.
Mamma: Vertu sæl, Rauðhetta
litla.
2. Uti í skógi.
Rauðhetta (sést á gangi): En livað
blómin eru yndisleg í dag. Fjólur, sól-
eyjar og eyrarrósir. En sú blessuð lykt
af birkitrjánum. Þrestirnir syngja svo
sætt i laufkrónunum. Þarna kemur
þá skógarvörðurinn. Góðan daginn,
skógarvörður.
Skógaruörður: Góðan dag, Rauð-
hetta litla. Hvert ert þú að halda?
Rauðhetta: Ég er að fara með ým-
islegt til ömmu.
Skógarvörður: Það er fallega gert
af þér. Ég veit, að það gleður hana,
að þú kemur til hennar. En farðu
varlega, því að úlfurinn er í skógin-
um. Skiptu Jtér sem minnst af hon-
um. Hann hefur Jrað til að vera
hrekkjóttur. Vertu nú sæl.
Rauðhetta: Vertu sæll, skógarvörð-
ur. Nei, þarna er Jaá úlfurinn. Hann
er að gægjast til mín milli trjánna.
Úlfurinn: Góðan daginn, Rauð-
hetta litla. En hvað það er gaman að
liitta þig. En hvað ertu með í Jressari
körfu?
Rauðhetta: Það er jólakaka, smjör-
skaka, liangikjöt og fleira.
Úlfurinn: Ég kæri mig ekkert um
jólaköku, en gott Jnætti mér að fá að
bragða kjötið.
Rauðhetta:. Ég má ekkert missa.
Amma mín á að fá það allt. Ég má
ekkert tefja. Ég verð að flýta mér til
ömmu. Vertu sæll, úlfur.
Úlfurinn: Jæja, svo hún ætlar til
ömmu sinnar. Hún er nú farin og sér
ekki til mín. Ef ég flýti mér, gæti ég
komizt til ömmu á undan henni. Og
Jjá er nú ekki að vita, hver fær hangi-
kjötið í kvöldmatinn.
452