Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1968, Page 37

Æskan - 01.11.1968, Page 37
Bee Gees. The Bee Gees er áströlsk hljómsveit, sem er nú tvímælalaust í hópi hinna vinsælustu í heiminum í dag. Þeir félagar semja sjálfir lög sín, og hafa hljóm- plötur þeirra selzt í milljónum eintaka um allan heim. Á síðastliðnu sumri ferðuðust þeir um 25 stórborgir Bandaríkjanna og lög þeirra hafa skipað fyrsta sæti á vinsældalista margra landa svo vikum skiptir. Nú stendur hljómsveitin í því að framleiða sína fyrstu kvikmynd, en hugmyndina að handritinu eiga bræð- urnir þrír í hljómsveitinni, Barry, Robin og Maurice, en þeir semja líka alla hljómlist, sem hljómsveitin flytur á hljómplötum. Þeir Robin og Maurice Gibb eru tvíburar, fæddir 22. desember 1949 í Manchester í Englandi, Barry Gibb er fæddur 1. september 1947 í Douglas, Englandi, Colin Petersen er fæddur 24. marz 1948 í Kinearoy, Ástralíu, og Vince Melouney er fædd- ur 18. ágúst 1945 í Sidney, Ástralíu. Umboðsmaður hljómsveitarinnar er faðir bræðranna, Hugh Gibb. — Á myndinni, frá vinstri: Vince Melouney, Maurice Gibb, Robin Gibb, Colin Petersen og Barry Gibb. allt í einu komin úr hitanum í Reykjavík í kuldann í London. l>að var heldur þegjandalegt í bílnum, en skyndilega rauf Stína þögnina. Hún mundi allt í einu eftir nokkru, sem gleymzt hafði. „Frænka, ég átti að skila kveðju frá mömmu." „Já, þakka þér fyrir, hvernig hefur hún það, er hún ekki við góða heilsu?“ „Það líður öllum vel heima, þakka þér fyrir,“ sagði Stína. „Það var gott að heyra,“ sagði frænka hennar. Nú varð aftur þögn í bílnum. Stína fór að horfa út um gluggann. Þar var margt að sjá. Umferðin var alveg gífurleg. Stórir og litlir bílar þutu fram og aftur og það var merkilegt að þeir skyldu ekki rekast hver á annan. Tvisvar lenti bíllinn þeirra í umferðarteppu, en það greiddist úr flækjunni fyrr en varði og áfram var hald- ið um margar götur og yfir mörg torg. Loks ók bíllinn inn í eina af kyrrlátari göturn borgarinnar. Þar stað- næmdist hann fyrir framan stórt, grátt steinhús með stórum svölum á framhliðinni. Umhverfis húsið var stór garður og hinn glæsilegasti að því er Stínu fannst. Há tré, runnagöng, og allt var fullt af blómum. Enginn arfi, ekkert illgresi eða slíkur óþverri. Það eina, sem virtist vanta, voru fuglar til að syngja í trjánum, hugsaði Stína er hún gekk eftir stígnum heim að húsinu. Frænka opnaði dyrnar og þær gengu inn í bjartan gang. „Jæja, nú er eftir að sjá hvernig þú kannt við þig hérna,“ sagði frænka hennar. „Ég er viss um að ég kann vel við mig,“ svaraði Stína. „Gott. Þú byrjar í skólanum eftir tvo daga og verður eftir hádegi, frá klukkan eitt til tvö. Hann er hérna rétt hjá, en við getum rætt um það seinna. Húsinu hér er lokað klukkan hálftólf og J)ú verður að vera komin inn fyrir þann tíma. Nína!“ kallaði liún svo. Lítil þerna birt- ist samstundis. „Nína, sýndu henni herbergið sitt.“ Svo 465

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.