Æskan - 01.11.1968, Qupperneq 40
INGIBJÖRG ÞORBERGS:
„Gítarinn minn“.
Þegar húsmæðurnar keppast viö að baka smákökur og annað
góðgæti, — þegar þær gera húsin hrein, hátt og lágt, sauma og
kaupa föt á börnin, vitum við, að þær eru komnar í jólaskap.
Smám saman setja borgir og bæir upp jólasvip. Einhver unaðs-
leg spenna ríkir í loftinu. Allir, sem geta, eru á þönum fram og
aftur. Það er eins og allt lifni. Umferð eykst. Ungir og gamlir
leita að jólagjöfum, smáum sem stórum. Ljós í öllum regnbog-
ans litum og margs konar skreytingar veita okkur mikla gleði.
Allt er gert til að skapa hátíðlegan blæ. Jólalögin taka að hljóma,
gömul og ný. Þetta styttir mjög skammdegið. Fyrr en varir er dag-
urinn aftur farinn að lengjast.
Þó að mörgum finnist heldur mikið umstang kringum jóla-
hátíðina, er ekki hægt að neita því, að það er dásamlegt fyrir
okkur hér á norðurhveli jarðar, að hún skuli einmitt vera haldin
á þessum tíma árs. Langir og leiðir væru jólalausir vetur. Og
leitt væri að þekkja ekki þetta sérstaka „jólaskap".
[ öllum gleðilátunum megum við þó ekki gleyma, hvers vegna við
höldum jólin hátíðleg. — En, við teljumst vera kristin þjóð, svo að
sjálfsagt gleymum við þvl ekki! Sjálfri finnst mér, að við mættum
hugsa svolítið meira um það. Hvað sem því líður, þá syngjum
við öll „Heims um ból“, þann jólasálm, er flestir jarðarbúar
syngja á jólunum. Og þið, sem eitthvað spilið á gítar, getið ekki
verið þekkt fyrir að kunna ekki að spila þennan helzta sálm jól-
anna! Ég læt ykkur hafa grip við hann, og þið reynið svo að spila
hann í A-dúr, eins og sýnt er hér að neðan.
Enn er verið að biðja mig um texta við lög úr kvikmyndinni
„Tónaflóð", og hér kemur sá síðasti. Þið fáið nú Ijóð við titillag
myndarinnar „The Sound of Music“, sem ég kalla „Hljómtöfra-
regn“. i því lagi koma fyrir margir nýir hljómar, sem ég læt fylgja
teikningar af (sjá bl. 469).
Þetta er of erfitt fyrir þá, sem lítið spila. Þeir, sem lengra eru
komnir ættu þó að hafa gaman af að spreyta sig á því.
Svo sendi ég ykkur öllum, sem syngið, spilið á píanó eða gitar,
frumsamið jólalag „Jólin eru að korna". Ljóðið er eftir skáld-
konuna Guðrúnu Jóhannsdóttur frá Brautarholti. Þetta Ijóð er úr
bók hennar „Börnin og Jólin". Lagið er tvíraddað (í D-dúr) með
píanóundirleik og liggur ágætlega fyrir barnakór. Ef einhver vill
svo syngja það og spila á gítarinn sinn, er það mjög auðvelt.
Ég merki grip inn í textann (sjá bl. 469), og hef það þá í C-dúr,
sem er ennþá auðveldara!
Svo vona ég, að enginn fari í jólaköttinn! — Og að þetta verði
hátíðleg og gleðirík jól!
Kærar kveðjur!
INGIBJÖRG
„Heims um ból"
Lag: GRÚBER
Ljóð: SVEINBJÖRN EGILSSON
A
Heims um ból, helg eru jól.
E7 A
Signuð mær son guðs ól,
D A
í'relsun mannanna, frelsisins lind,
D A
frumglæði ljóssins. En gjörvöll mannkind
E7 A
meinvill í myrkrunum lá,
E7 A
meinvill í myrkrunum lá.
A
Heimi í hátíð er ný.
E7 A
Himneskt ljós lýsir ský.
D A
Liggur í jötunni lávarður heims,
D A
lifandi brunnur hins andlega seims,
E7 A
konungur lífs vors og ljóss,
E7 A
konungur lífs vors og ljó.ss.
A
Heyra má liimnum í frá
E7 A
englasöng: „Hallelújá“.
D A
Friður á jörðu, því faðirinn er
D A
fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér
E7 A
samastað syninum lijá,
E7 A
samastað syninum hjá.
A(dúr)
Nj |/
l-f 3
D(dúr)