Æskan - 01.11.1968, Side 59
Ef þú átt að gasta ungbarns að kvöldi,
meðan foreldrarnir eru að heiman, og þú
er sem sagt ein og berð alla ábyrgðina,
væri rétt að muna eftirfarandi:
1. Að þú verður að kunna rétt tök við að
taka þarnið upp úr rúmi sínu, og skipta
bleyju á því.
2. Að ef þarnið vaknar og hefur svitnað,
verður þú að geta skipt á því, svo að
því verði ekki kalt af því að liggja I
blautum fötunum.
3. Að þú þarft að kunna að hita pelann
mátulega.
Ef barnið sefur eða er rólegt, þá getur
þú lesið eða gert eitthvað í höndunum, ef
þú situr þar, sem þú getur fylgzt með barn-
inu. Ef barnið er blautt af svita eða hefur
bleytt sig svo mikið, að nauðsyn er að
skipta á þvf öllu, þá munið að þerra það
vel áður en sett er púður eða krem, og
muna það, að aldrei má setja krem á þá
staði, sem þið hafið púðrað.
Þannig áttu að halda barninu, þegar þú
gefur þvf pelann, og mundu að gefa þér
góðan tíma, þá verður þarnið rólegt og eins
þegar það hefur lokið við að drekka að lyfta
því upp á eftir, svo það losni við það
loft, sem það saug til sín um leið og það
drakk úr pelanum.
FIMM ÆYINTÝII
Hér birtast fimm ævintýri í einni bók eftir Jóhönnu Brynjólfsdóttur. Höfundurinn
hefur áður skrifað mörg fögur ævintýri fyrir börn og unglinga, sem hafa á undan-
förnum árum birzt í blöðum og mörg þeirra verið flutt í barnatíma Ríkisútvarps-
ins. — Hin fimm ævintýri, sem hér birtast, heita: Svanurinn, Hamingjublómið,
Snæljósið, Vinirnir og Biómaríkið.
Auk ritstarfa hefur Jóhanna Brynjólfsdóttir teiknað og málað mörg fögur lista-
verk og haldið sýningar á verkum sínum. Hún stundaði myndlistarnám í Reykjavík,
nám við listaháskóla í Kanada, og síðan við Ríkisháskólann í Norður-Dakota.
Fimmtán teikningar Jóhönnu prýða þessa nýju bók hennar.
Kynnist þessum nýja ævintýrahöfundi og gefið börnunum eintak af „Fimm
ævintýrum".
í lausasölu kr. 53.75. Til áskrifenda ÆSKUNNAR kostar bókin aSeins kr. 37.00.
487