Æskan - 02.02.1967, Qupperneq 1
Sérstök kostakjör
ÆSKAN hefur, vegna eindreginna til-
mæla lesenda sinna, ákveðið að gefa
áskrifendum sínum kost á að kaupa all-
ar útgáfubækur Æskunnar með sérstök-
um kostakjörum. Alls mun Æskan hafa
gefið út til þessa yfir 140 bækur, en því
miður getum við ekki í þetta sinn boðið
fleiri en 33 bækur, því aðrar eru upp-
seldar.
Hverjum áskrifanda er heimilt að
kaupa eins margar bækur og hann ósk-
ar, og strax og pöntun hefur borizt verð-
ur hún afgreidd og send í póstkröfu, ef
borgun hefur ekki komið með pöntun-
inni.
Með þessum kostakjörum til áskrif-
enda Æskunnar, getur nú hvert barna-
heimili landsins komið sér upp sínu eig-
in safni barna- og unglingabóka, en það
er mikilsvert, að börn og unglingar fái
að njóta samfélags við þær úrvalsbækur,
sem Æskan hefur upp á að bjóða — en
Æskan gefur ekki út annað en úrvals-
bækur. Hvert slíkt barna- og unglinga-
bókasafn á barnaheimilum landsins get-
ur orðið mikilvægur þáttur í uppeldi
þjóðarinnar.
Hér á eftir birtist skrá yfir allar þær
bækur, eldri og yngri, sem áskrifendur
Æskunnar eiga kost á að panta við miklu
lægra verði en öllum almenningi býðst
nú í dag.
Þeir, sem búsettir eru í Reykjavík eða
nágrenni, og vilja notfæra sér þessi góðu
kostakjör, geta snúið sér til skrifstofu
Æskunnar, Lækjargötu 10, sími 17336.
Annars staðar í þessu aukablaði er
handhægur pöntunarseðill fyrir þá, sem
hafa hug á að notfæra sér þessa ein-
stæðu þjónustu.
ÆSKAN GEFUR EKKI ÚT ANNAÐ EN ÚRVALSBÆKUR
1