Æskan - 02.02.1967, Blaðsíða 3
°ftir Cliarles Dickens er sígill listavcrk
heimsbókmenntanna. Þýðingu gerði Hann-
°s J. Magnússon, skólastjóri. Árið 1043 kom
l'essi saga fyrst út hjá Æskunni, en seldist
UPP á skömmum tíma. Þetta sigilda verlt,
sem er 367 blaðsíður að stœrð, er með 42
■tiyndum. Bók jiessi er kærkomin tækifær-
isgjöf handa unglingum á öllum aldri.
f lausasölu kr. 161.25. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 107.00.
j DAVÍD
I COPPKRFIELD
Öavíð Copperfield
I5etta sígilda listaverk heimsbókmennt-
oiina er nú komið út í iieild hjá Æskunni.
Höfundur sögunnar Davíð Copperfield,
enska skáldið Charles Dickens, fæddist i
Hortsmouth 7. febrúar 1812. Foreldrar
|lans fluttusl til Lundúna, er hann var
•> bernskuskeiði. Efnabagur þeirra varð
Slðar mjög bágur, og kynntist Dickens ]>ví
nnlílu fátæktarbasli á æskuárum sínum.
'n hann kynntist einnig merkilegum bók-
nienntum, því að faðir hans átti dálítið
s‘dn úrvalsbóka, og í ]>eim las Dickens oft,
Pegar jafnaldrar hans voru að leikum.
Hegar Dickens komst til fullorðinsára,
Serðist hann blaðamaður, en tók jafn-
famt nð rita skáldsögur, er brátt vöktu
ndæma athygli og vinsældir um gervallt
■etland og síðar víða um lönd. Hafa
skáldsögur bans verið þýddar á um 70
tungumál. Dickens var skáld af guðs náð.
Skyggni hans á mannlegt ]íf var frábært,
enda eru lýsingar hans bráðlifandi. lfann
var meinfyndinn og bitur í senn, enda
auðnaðist honum að skapa sögulietjur,
sem seint munu gleymast. Dickens and-
aðist 9. júní 1870. Var lík bans, samkvæmt
ósk ensku þjóðarinnar, flutt til West-
minster Abbey í Lundúnum, þar sem
jarðneskar leifar ýmissa frægustu sona
Bretlands hvíla.
Sagan Davíð Copperfield er talin vera
ævisaga Dickens sjálfs, ldædd i skáldleg-
an búning. Margt í henni styðst við raun-
verulega atburði úr lífi skáldsins, og fyr-
irmndir ýmissa söguheljanna eru vel
kunnar. Sagan er að vissu leyti mcrkilegri
fyrir bragðið. Þar er lýst örðugri lífsbar-
áttu ungs manns, og er sagan víða áhrifa-
mikil og vel til þess fallin að vekja við-
bjóð á liarðýðgi og ruddaskap, en jafn-
framt trú á sigur hins góða. Þýðingu bók-
arinnar gerði Sigurður Skúlason. Bókin
er 325 blaðsíður að stærð og prýdd mörg-
um myndum.
f iausasölu kr. 161.25. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 107.00.
Móðir og barn
í tilefni af 65 ára afmæli barnablaðsins
Æskunnar árið 1964 gaf blaðið út sina
fyrstu hvitu bók, sem var eitt af verkum
indverska spekingsins Tagore. Tagore er
eina Nóbelsverðlaunaskáld Austurlanda og
lilotnaðist sá mikli lieiður árið 1913. Bók
þessi, sem er 91 blaðsíða að stærð og
gefin út í sérstakri hátiðarútgáfu, er þýdd
af Gunnari Dal, rithöfundi. Þessi bók er
ein af perlum heimsbókmenntanna. Ta-
gore fæddist árið 1861 og lézt 1941. Eftir
liann lágu um 100 verk. Bókin Móðir og
barn skiptist i eftirtalda kafla: Húsið, Á
ströndinni, Hvaðan komstu?, Litla barn-
ið, Hátiðasýning, Svalan, Uppliafið, Ver-
öld barnsins, Hvers vegna?, Rógur, Dóm-
arinn, Barnagull, Stjörnufræðingurinn,
Ský og öldur, Champa-blómið, Álfheim-
ar, Land útlagans, Regn, Bréfabátar, Sæ-
farinn, Handan fljótsins, Blómaskólinn,
Iíaupmaðurinn, Samúð, Iíöllun, Stóri bróð-
ir, Litli stóri maðurinn, Klukkan tólf,
Rithöfundarlíf, Svikull póstur, Hetjan,
Endalokin, Minning, Fyrstu jasminurnar,
Banyan-tréð, Blessun, Gjöfin, Ljóð mitt,
Englabarnið, Síðustu kaupin.
í lausasölu kr. 172.00. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 118.00.