Æskan - 02.02.1967, Blaðsíða 8
Ævintýri barnanna
í bók þessari eru 24 heimsfræg ævin-
týri og 172 myndir. Ævintýrin eru: Rauð-
hetta, Húsamúsin og hagamúsin, Sæta-
brauðsdrengurinn, Heimska stúlkan, Ljóti
andarunginn, Itrír bangsar, Geiturnar
þrjár, Ofur litla konan, Litia rauða hæn-
an og refurinn, Ungi litli, Úlfurinn og
kiðlingarnir sjö, Heimski Hans, Úlfur!
Úlfur!, Refu rinn og hrafninn, Litla gula
hænan, Óskirnar þrjár, Stráið, koiamol-
inn og baunin, Keriingin og grisinn, Bónd-
inn, konan og dóttirin, Hérinn og skjald-
bakan, Ljónið og músin, Þrir iitlir grísir,
Potturinn, sein ekki vildi iiætta og Gæs-
in, sem verpti gulleggi. — Rók þessi er
ein sú vandaðasta, sem út hefur verið gef-
in hér fyrir l)örn. Allar myndirnar, sem
eru gerðar af Feodor Rojankovsky, eru
prentaðar i Noregi og eru flestar i mörg-
um litum. Bókin héfur selzt í mörgum
upplögum á Norðurlöndum, en alls mun
þessi útgáfa þessara frægu ævintýra liafa
komið út i yfir 40 löndum á síðustu ár-
um. Þórir S. Guðbergsson, rithöfundur,
hefur gert íslenzku þýðinguna.
í lausasölu kr. 193.50. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 134.00.
☆
Hart á móti hörðu
Höfundur þessarar bókar er norski rit-
höfundurinn Dag Christensen. Þetta er
fyrsta bók liöfundar, skrifuð er hann var
aðeins 17 ára að aldri, en alls mun hann
til þessa liafa skrifað fjórar unglingabæk-
ur, sem allar hafa orðið metsölubækur í
Noregi.
Söguhetjurnar í þessari bók eru tveir
hressilegir unglingar, sem báðir eru hneigð-
ir fyrir ævintýri og komast þess vegna oft
i hann krappan.
Guðmundur Gíslason Hagalin, rithöfund-
ur, þýddi bókina.
I Iausasölu kr. 163.95. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 107.00
'Ccvtt ^i’tíöWcv,
ANNALÍSA
í ERFIDLEIKUM
Ævintýri Péturs litla
Höfundur þessarar bókai' er Eggert E.
Laxdal, listmálari. Er þetta fyrsta barna-
bók höfundar, en óður hafa birzt eftir
bann sögur og Ijóð í ýmsum blöðum og
tímaritum. Ævintýri Péturs litla er
skemmtileg bók fyrir þau yngstu, því
Pétur kemst i mörg skemmtileg ævintýri,
Jiótt hann sé ekki ncma fimm ára gamall.
Ævintýri Péturs litla eru 11 í bókinni, en
þau lieita: Skipið, Flugferðin, Á leikvell-
inum, Vondi strákurinn, Sunnudagur, í
sveitinni, Pétur villist, Veiði, Bíóferð,
Sleðaferð og Snjórinn.
í IuuhuköIu kr. 78.45. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 53.00.
Annalísa í erfiöleikum
Bók þessi er önnur þeirra bók Tove
Dillevsen, sem iiún hefur skrifað fyrir
unglinga. Fyrri bók höfundar kom út á
vegum Bókaútgáfu Æskunnar 1965 og bét
Annalísa 13 ára. Þetta er nokkurs konar
framhald af þeirri bók, en samt er hvor
bókanna um sig sjálfstæð. Ekki þarf lengi
að lesa 1 iI að sjá, að bókin er i sérflokki,
þar sem hver persóna hennar er bráðlif-
andi og söguþráðurinn mjög hraður og
spennandi frá upphafi til cnda. Höfund-
urinn, Tove Ditlevsen, er frægasti kven-
rithöfundur Dana nú á dögum. Bók þessi
hefur selzt í mörgum upplögum á Norður-
löndum á síðari árum.
í lausasölu kr. 166.60. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 112.00.
Eggrrt E. Laxdal
Æfintyri
Péturs litla