Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1969, Blaðsíða 20

Æskan - 01.02.1969, Blaðsíða 20
(j&j Fyrir ungar stúlkur BURSTAR Hér á myndinni eru þrír burstar, sem eru alveg nauð- synlegir til að halda llkaman- um hreinum, sem sagt tann- bursti, hárbursti og baðbursti. Þá tvo fyrrnefndu verður þú auðvitað að eiga sjálf, en bað- burstinn er vanalega eign allr- ar fjölskyldunnar. Þú þarft ekki endilega að kaupa þér dýrustu gerð af hárbursta, ef þú átt einn með trébaki, þá getur þú málað hann hvítan að ofan og skreytt hann með fallegri rós eða einhverju skemmtilegu mynztri. SKÓRNIR Munið eftir að hirða vel skóna ykkar, þá endast þeir betur o'g eru fallegri. Það er alltof algeng sjón á islandi að sjá illa hirtan skófatnað. Betri eru slitnir skór vel hirtir en nýir, skítugir og hælaskakkir. Á alla brúna og Ijósa skinn- skó á að nota litlausan skó- áburð. Á háu svörtu kulda- skóna er borin skósverta og munið að bursta þá fyrst með góðum skóbursta, og síðast eru þeir gljáfægðir með mjúk- um klút, sem þið hafið alltaf við höndina í skókassanum ykkar, og gott er að hafa 2 klúta, annan fyrir litlausa á- burðinn. Á rúskinn er notaður sérstakur áburður og er hon- um úðað yfir skóna. LfKAMSÆFINGAR Þótt þú sért I leikfimi í skól- anum, sem við gerum ráð fyrir, þá er hollt fyrir þig að gera léttar æfingar heima, og það tekur lítinn tíma, þú verður beinni í baki og frjálslegri í hreyfingum. Leggztu niður á bakið og teygðu báða hand- leggina aftur fyrir þig, fyrst hægri arm og síðan vinstri. Önnur æfing fer einnig fram á gólfinu. Nú beygir þú hné, siðan lyftir þú hægri fæti og síðan vinstri. Þú sezt nú upp og hefur fætur beina en aðskilda. Nú beygir þú þig fram með beint bak og tekur í tærnar. Þú sezt á stól með aðskilda fætur, réttir fyrst upp hægri arm og síðan vinstri, berð þig að eins og þú ætlir að ná i eitthvað fyrir ofan þig. Þorkell og Emil horfa út um gluggann, er lagt var af stað frá Voss. Eftir æði tíma stanzaði lestin í Finnse. Þarna cr lítill bær við langt stöðuvatn og Harðangursjökullinn í næsta nágrenni. Að þessu sinni liöfðu þeir Harðangursjökulinn fyrir sunnan sig, öfugt við j>að sem var, þegar þeir fóru vestur um daginn áður. Það var liætt að rigna og komið bezta veður, og þeir nutu útsýnisins, en Emil var ekki sérstaklega hrifinn af jöklinum. Hann liafði miklu stærri og fallegri jökul í næsta nágrenni sínu heima á Horna- firði, áleit liann. Um kvöldið fóru þeir fram í veitinga- vagninn og snæddu kvöldverð. Það var gott að fá í svang- inn og gaman að borða i járnbrautinni, sem hristist dá- lítið og ruggaði til og frá, en það kom eltki að sök. Sveinn stríddi þeim Emil og Þorkeli með því, að nú yrðu ]>eir liklega sjóveikir, og þeir ræddu um, livað slíkt yrði kallað í járnbraut, en allt var þetta í gamni og þeir ferðafélag- arnir höfðu beztu lyst. Iilukkan 10 um kvöldið rann lest- in loks inn á járnbrautarstöðina i Osló. Þeir flýttu sér út úr stöðinni, náðu í leigubil og óku til gistihússins Studentebyen Sogn. Og það voru þreyttir fjórmenningar, sem lögðust til livildar þetta kvöld í Osló og um að gera að njóta hvíldarinnar vel. Morguninn eftir átti að sltoða margt merkilegt i Oslóborg og söfnin á Bygdö. Framh. 84

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.