Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1970, Page 14

Æskan - 01.11.1970, Page 14
Mikið annríki hafði verið í húsagarðinum um dag- inn, og nú stóðu þar þrjár snjókerlingar með andlit úr smásteinum. Vinnunni höfðu stjórnað tveir drengir; þeir voru orðnir átta ára og farnir að ganga í skóla. Nú voru þeir í jólafrii. Hinir drengirnir fjórir voru enn of ungir til að ganga í skóla, og þess vegna voru þeir auðvitað ekki í jólafríi. Þeir höfðu keppzt eins og þeir gátu við vinnuna og hiýtt skipunum verkstjóranna af samvizkusemi. En nú var verkinu lokið og fjórir drengjanna farnir burtu. Eftir voru tveir bræður, Palli sex ára og Maggi fjögurra ára. Þeir áttu heima í kjallara hússins og sátu nú á tröppunum. Það var farið að dimma, og frostið herti því meir sem leið á daginn, og þeim var báðum dálítið kalt. Maggi litli stakk höndunum með blaut- um vettlingunum á milli hnjánna, hann sat I einum hnút, og röddin var ekki laus við skjálfta, þegar hann sagði: „Ættum við ekki að koma inn?“ Palli velti svarinu fyrir sér, honum var líka orðið kalt, en hann vildi ekki viðurkenna það. Því síður vildi hann kannast við, að hann gat varla hugsað sér að vera inni í íbúðinni, því mamma var ekki heima og þá var allt svo tómlegt þar inni. En hvað mamma var búin að vera lengi, hún hafði farið til ömmu strax eftir hádegið til þess að taka til hjá henni. Amma var alltaf svo veik, og í dag var Þorláksmessa og í kvöld kæmi pabbi af sjónum, og á morgun kæmu jólin. Palli leit á Magga, sem nú var farinn að vola, og sagði: „Við skulum koma inn og ná í peningana, sem við ætl- uðum að kaupa jólagjöfina fyrir handa pabba og mömmu, ég get alveg náð þeim úr bauknum." Maggi hætti að gráta og þurrkaði sér um augun með blautum vettlingnum. Þeir gengu inn í litlu íbúðina og Palli fór að reyna að ná peningunum úr bauknum, en Maggi stóð við ofninn á meðan. Smápeningarnir ultu út einn eftir annan, amma hafði gefið þeim peninga í hvert sinn, sem þeir heimsóttu hana. „Við skulum leika okkur hérna inni, mig langar í mjólk,“ sagði Maggi, honum var farið að hlýna, og nú langaði hann ekkert út í frostið aftur. „Mamma gefur okkur að drekka, þegar hún kemur, og það er svo stutt út í búðina á horninu, og svo sjáum við jólasveininn, sem er þar í giugganum," sagði Palli. Hann var búinn að ná öllum peningunum úr bauknum, það var hann, sem var stóri bróðir og átti að gæta Magga, og nú hafði hann ákveðið, að þeir færu tveir einir að kaupa jóla- gjöf. Magga langaði ósköp mikið til að sjá jólasveininn, sem stóð í glugganum og kinkaði kolli án afláts framan í krakkana, sem flöttu nefin á rúðunni. Sum þau allra minnstu trúðu því, að þetta væri alvörujólasveinn, og það gerði Maggi á síðustu jólum, en nú vissi hann, að þetta var rafmagnsjólasveinn, en það var alltaf gaman að horfa á hann. Bræðurnir leiddust eftir götunni, í flestum húsunum var búið að koma fyrir jólaskreytingum og á mörgum trjám voru mislitar perur, sem nú var búið að kveikja á. Svo komu þeir út á aðalgötuna, þar voru verzlanirnar með glugga sína skreytta í tilefni hátíðarinnar. Þeir námu staðar við glugga leikfangabúðarinnar og virtu fyrir sér öll leikföng- in þar. „Ættum við að kaupa þennan lyftikrana?" Það var Maggi, sem sagði þetta og horfði löngunarfullum augum é bláan lyftikrana, sem leit út alveg eins og alvörukrani á dekkjum og með stýri. „Óttalegur kjáni ertu, fullorðið fólk leikur sér ekki að svona dóti, en það er ekki von, að þú skiljir það, þú ert svo lítill," sagði Palli með lítilsvirðingu I rödd- inni. „Jú, víst,“ sagði Maggi, „mamma leikur sér oft að dót- inu með okkur.“ Honum sárnaði, að Palli skyldi enn einu sinni tala um, að hann væri lítill. Hann hafði undanfarið hugsað mikið um, hvort hann gæti ekki orðið sjö ára á næsta afmælisdegi, og helzt stærri en Palli. „Þá er hún bara að leika við okkur,“ sagði Palii og dró Magga með sér áfram. Þeir voru ekki komnir langt, þegar þeir mættu dreng, sem gekk álútur og horfði skimandi í kringum sig. Hann var úlpulaus í kuldanum, í annarri hendinni hélt hann á innkaupaneti, en hina hafði hann í vasanum. „Týndirðu einhverju, Jonni?" spurði Palli. Þetta var ann- y 562
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.