Alþýðublaðið - 06.04.1923, Blaðsíða 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
öllu virðist skamiuota aftur, og
ekkert þykir gott oema það,
sem óbreytt er síðan fyrir árið
1914.
Dýraverndarinn, 9. árg., 1. og
2. blað. — »Dýraverndarinn< er
gott blað og verðskuldar hylli
manna, því að hann hefir tekið
að sér gott málefni, að halda
uppi vörn fyrir vesalings skepn-
urnar, sem oftlega hafa orðið
lyrir hörðuur búsiljum af hendi
skiluingslausra manna, sem tekið
hafa að sár yfirráð yfir þeim.
í þessum blöðum eru margar '
góðar greinar. Meðal annars er
þar deilt alvarlega á ríkisstjórn-
ina fyrir undanþágu, er hún hefir
veitt, frá lögum um útflutnihg
hrossa. Hafa þingmenn vonandi
lesið þær greinar, en et svo er
ékki, ættu þeir þó að gera það
áður en þeir afgreiða til fuils
breytingu þá á þessum lögum,
er nú liggur fyrir þinginu.
Verzlunartíðindi, 6. ár., nr,
1.— 2. — í þessu heíti er auk
annars grein um »prentaraverk-
fallið<, sém þar er kallað, þótt
rangt sé, því að miklu fremur
var um verkbann að ræða, en
greinarhöfund . munar . sýnilega
ekki um það, því að greinin er
í tám orðum sagt ekkert annað
en vitleysa, skrifuð af illmann-
legu hæglæti þó. Sem dæmi má
nefna, að hann kallar átta-tíma-
vinnúa >þriðjungsvinnu<; eftir
því ætti full vinná að vera 24-
stunda-vinna. Gera má ráð fyrir,
að hinir »iðjusömu og duglegu<
kaupmenn og atvinnurekendur,
sem að ritinu standa, vinni þessa
fullu vinnu, því að annars myndi
greinarhöfundur varla haldaþessu
fram, og er þá ekki að undra,
þótt ekki sé sem bezt lag á
starfsemi þeirra, en skiljanlegra,
hvað þeim er gjarnt að >fara á
hausinu<, því að mannatetrin
hljóta að vera nær dauða en lífi
af svefnleysi.
Dansk-Islandsk Kirkesag. —
Snúrit þetta er miklu skemti-
legra en ætla mætti eftir nafninu.
Par er meðal annars sagt frá
því, að kónginum hafi verið
færð kirkjusaga dr. Jóns Helga-
sonar hin dánska að gjöf. Má
nærri geta, að þeirri gjöf hafi
verið vel fagnað!
!S
AlþýðahraHBgerðin
framleiðir að allra dómi
beztöi toauöiíi í bænum.
Notar að eins bezta mjöl og hveiti fr’á þektum erlendum
mylnum, og aðrar vörur frá helztu firmum í • Ameríku,
Englandi, Danmörku og Rollandi. Alt efni til brauð- og köku-
gerðar, smátt og stórt, eru beztu vörutegundirnar, sem á
heimsmarkaðinum fást.
Framhald frá 1. síðu.
son og Þórður Sveinsson. Með
voru Alþýðuflokksfulltrúarnir 5
og Pétur Magnússon. Borgar-
stjóri, Jón Ólafsson og Sigurður
Jónsson greiddu ekki atkvæði.
Er þar með lokið þessu máli
að sínni, og má að vísu við það
una, því að húsaleigulögin standa
óhögguð. En eigi að síður má
segja, að þótt oft hafi tekist
óhöndulega meðferð mála í
bæjarstjórn, þá hafi það nú náð
hámarki. Af því, sem að framan
er sagt, má sjá, hverjum það er
að kenna.
Umdagmnogvepin.
FisbisklþÍH. Draupnir kom af
veiðum í gær með 70 föt lifrar
og Austri með 40 föt.
Slys. Franskur togari kom í
fyrra dag tíl Veslmannaeyja með
11 menn, er höfðu brenst til skaðá
við það, að ollía hafði helst á
eldavól og runnið logandi út um
hásetaklefann, þar sem þessir
menn voru. Brendust níu þéirra
mikið, og eru tveir af þeim taldir
í lífshæ'ttu, en tveir kvað vera
lítt brendir.
Bagiæti heitir bók, sögur og
æfintýri, eftir Hallgrím Jónsson
kennara, sem komin er út. Verður
hennar nánara getið síðar.
Xarzan. Friðja hefti. sögunnar
af honum, >Dýr Tarzans,< byrjar
að koma hóf í blaðinu á morgun.
Niðst.erkt fataefni til sölu mjög
ódýtt. Upplýsingar Laugaveg 76.
Steinolía (sólarljós) 32 aura pr.
Jitrinn. — G. Guðjónsson, Skóla-
vörðustíg 22. — Sími 689.
1. flokks spaðsaltað sauðakjöL
80 aura 1/2 kgr. — G. Guðjónsson.
Skólavörðnstíg 22. — Sími 689.
Kaffi brent og malað 2 kr. pr.
x/2 kgr., óbrent bezta teg. 1,50 pr.
Va kgr., Oacaó 2 kr. pr. V2 kgr.,
te í pökkum frl 1,20 — 1,50.
G. Guðjónsson, Skólavörðustíg 22.
Sími 689.
Á verkstæðinu á Skólavörðustíg
3 kjallaranum (steinhúsið) er meðal
annars gert við regnhlífar, grammó-
fóna, blikk- og emaill. íláfc og prím-
usa. Mjög fljót afgreiðsla.
Sí. Skjaldbrelð. Fundur í
kvöid. 1. flokkur skemtir í síðasta
sinn. Sfeemtiatriði fjölbreytt og góð.
Hljómlelkar verða haldnir í
Nýja Bíó kl. 4 á sunnudaginn til
ágóða fyrir starfsemi Hjálpræðis-
hersins. Syngur þar Karlakór K.
F. U. M. undir stjórn Jóns Hall-
dói ssonar, Bernburg leikur á fiðlu,
og Fóraiinn Guðmundsson, Theó-
dór Árnason og Otto Böttcher
leika »Trio< eftir Beethoven. Próf.
Sv. Sveinbjömsson leikur >Ó guð
vors lands,< en kór háskóla-
stúdenta aðstoðar.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hallbjörn Halldórsson.
Prentsmiðja Hallgríms Benediktssonar, Bergstaðastræti 19,