Alþýðublaðið - 07.04.1923, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 07.04.1923, Blaðsíða 1
x923 Laugardaginn 7. apríl. 77. tölublað. Nýjustu símskevti. Khöfn, 6. apríl. Stjérnarskifti í Svíjjóð. Frá Stokkhólmi er simað: Að lokinni umræðu um frumvarp stjórnarinnar um atvinnulausra- styrk var það felt í neðri deild þingsins, og sagði þá Branting at sár stjórnarforustu. Búist er við, að Ekman ritstjóri myndi ráðuneyti með stuðningi frjáls- lynda flokksins. Símfr egn. Leikfélaq Reykjavikur. Víkingarnir á Hálogalandi verða leiknip sunnudaginn 8. þ. m. kl. 8 síðd. Aðgösgumiðai seldir, í dag laugardag, frá kl. 4—7 og sannud. frá ki. 10 —12 og eftir kl. 2. Hlutaveltu heldur st. Unnur á morgun, 8. apiíl, í G.-T.-húsinu kl. 4 — 6 og 8 —11 e. m. Margir ágætir munir, svo sem kol,. feskur o. fl. Ekkert lióil. Inngangur íyrir fullorðna 50 aurar, fyiir börn 25 aurar. Dráttur 50/^aurar. Aliir fá því eitthváð fyrir peninga sfna. Að eins fyrir templara. Lhndúnum 3 apríl. Símað er frá Aberdeen, aö 3000 skozkir veiðimenn geri verkfall til þess að mótmæla ísfiskssölu' frá þýzkum botnvörpungum. Róð- ust Skotar á þýzku skipshafnirnar og köstuðu á þá ísi. Um dagmnog veginn. Mtissur á morgun: í dóm- kirkjunni kl. 11 sírá Jóhann Þorkelsson, kl. 5 síra Bjarni Jónsson. — í Fríkirkjunni kl. 5 síra Árni Sigurðsson. — Landa- kotskirkja: Hámessa kl. 9 f. h. og kl. 6 e. h. gudsþjónusta með predikun. 31. F. F. A. Fundur á morgun (sunnudagj kl. 8 e. m. Bragi. Æfing kl. 10 á morgun. Mætið allir stundvíslega! Bjanii tekur skriftir. í grein um gerðardóm sinn í >Vísi< í gær tekur Bjarni frá Vogi skriítir og játar, að öli meginatriði í írumvarpi hans hafi verið van- hugsuð. En undarlegt er, að vanhugsunin skyldi vilja svo til, að hún væri að eins verkamönn- um t óhag, úr því hann lætur svo, sem haun hafi með frum- varpinu sérstaklega ætlað að vinna þeim gagn og gerðir hans hafi stjórnast af því, að hann vildi þeim vel. Bjarni hefir svo sem kunnugt er tekið sér þau. einkunnarorð >að hugsa rétt og vilja vel<, en nú lítur svo út af þessum skriftum hans, að hann hafi ætlað að vilja svo vel, að hann hafi gleymt að hugsa rétt. „Tækifærið gríjitu greitt!“ Á morgun heldur st. Unnur hiutaveltu með ágætum vinning- um, en engu núlli. Friinsku liskimennírnir, sem brendust um daginu, eru flestir á batavegi, eu tveir eru mjög hæltulega veikir og tæplega hugað líf. Liggja þeir allir á spítala í Yestmannaeyjum. 'Gferðardómsniétmælin. For- seti neðri deildar Álþingis til- kynti í fyrra dag, að á lestrarsal hefðu verið lögð fram mótmæli Pantið Kvenhatarann í síma 200 eða 1269. frá 384 sjómönnum gegn gerðar- dómsfrumvarpi Bjarna Jónssonar frá Vogi. „Guðrækinn44 hefir beðið >AL þýðublaðiðt að skila þvi til >MorgunbIaðsins<, að hann hafi enga löngun til þess að elta það á undanhaldi þess aftur eftir öldunum og vilji lofa því að vera einu í þeirri aíturför. Von- ar hann, að á þeirri leið muni ef til vill opnast augu þess fyrir því, að það hafi nú helzti lengi lifað af arðinum af brotum auð- valdsins á 7. boðorðinu, er sam- vizkan hefir nú riljað upp fyrir því, og fái það þannig færi á að iðrast íyrir óumflýjaniegan dauðann. Fiskiskiptn. í gær komu af veiðum Skallagrímur með 90, Þórólfur með 50, Tryggvi gamli með 90, Aspasea með 48 og Otur með 60 föt lifrar. &

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.