Æskan - 01.09.1975, Blaðsíða 47
i t ;fe. v ’■ ■
Flugbátur Flugfélags (slands, TF-ISP fór þrjár ferSir til útianda sumariS 1945 og flutti samtals 56 farþega og póst milli
landa. Hér er þessi fyrsta „millilandaflugvél“ Sslendinga í erlendri flugbátahöfn.
Enda þótt 30 ár séu séu stuttur kafli ( lífi þjóðar,
er það þó ærinn tími í þróunarsögu flugsins. Nú á
30 ára afmæli millilandaflugs okkar íslendinga næg-
lr að þera saman farkost, sem nýttur var til fyrstu
!llJgferðar frá íslandi með farþega, Katalina-flugvél-
lea TF-ISP og þotur íslensku f’lugfélaganna, Flug-
f®lags íslands og Loftleiða. Fyrsta ferðin frá Reykja-
vfk til Largs, hinn 11. júlí 1945, tók 6 klukkustundir.
tekur flug þessa leið rúma eina og hálfa klukku-
stand. Og áfram heldur þróunin í flugtækni. Innan
skamms verða hljóðhverfar þotur í flugi yfir heims-
nöfin. Þá verður hægt að ferðast til baka í tímanum.
annig getur viljað til, að sá sem leggur upp í ferð
1 da9, komi á ákvörðunarstað í gær!
. Nú þegar 30 ár eru liðin frá upphafi millilandaflugs
sl®ndinga, eiga eflaust margir erfitt með að setja
Sl9 í spor þeirra, sem stóðu að fyrsta millilandaflug-
lnu- Heimsstyrjöldin síðari stóð enn, þótt vopnahlé
^ri komið á I Evrópu. Allar samgöngur milli landa
utu lögmáli stríðsins. Á þetta ráku þeir sig, Örn Ó.
°nnson og samstarfsmenn hans hjá Flugfélagi ís-
nds, er þeir hófu undirbúning fyrsta millilanda-
u9sins í ársbyrjun 1945. Eftir að breska stjórnin
leyfði tilraunaflug frá íslandi til Skotlands, varð að
svara mörgum og flóknum spurningum um áhöfn,
farþega og væntanlegan farkost. Það var skilyrði,
að Bretar yrðu með í áhöfn flugvélarinnar. Flugfélag
íslands hafði haustið áður keypt flugbát af banda-
ríska flughernum. Sá hlaut einkennisstafina TF-ISP.
Þessi flugvél var innréttuð í Reykjavík með sætum
fyrir 22 farþega.
Máltækið segir, að oft isé mjór mikils vísir. Segja
má, að það hafi sannast á flugmálum okkar íslend-
inga. Sá þáttur í samgöngusögu þjóðarinnar, sem
hófst 11. júlí 1945, hefur vaxið og dafnað örar en
nokkurn gat grunað. Samtímis hófst einnig annar
þáttur og ekki ómerkari: nýr þáttur í atvinnusögu
landsmanna. Nú starfa hátt á annað þúsund manna
við flugið og þar að auki er fjöldi fólks tengdur því
að einhverju leyti. Gjaldeyristekjur af starfsemi (s-
lensku áætlunarflugfélaganna nema á síðari árum
miklum fjárhæðum og síðast en ekki síst hefur milli-
landaflug íslensku flugfélaganna tryggt okkur íslend-
ingum forræði í samgöngumálum landsins við um-
heiminn.
45