Æskan - 01.10.1975, Síða 21
GUNNAR MAGNÚSSON FRÁ REYNISDAL:
Dyrhólaey, syðsti tangi Islands
Dyrhólagat.
Ðyrhólaey er syðsti tangi á íslandi sem kunnugt er.
Að vísu er það Lundadrangur sem er syðsti grunn-
Jínupunktur, en hann er holur að innan og var farið
lnn í dranginn á áttæringi á meðan drangaferðir
voru stundaðar. í Dyrhóladranga var farið áður eftir
fu9li og eggjum, en nú er því hætt fyrir mörgum
árum.
Dyrhólaey er mynduð við eldgos endur fyrir löngu,
en þar má lesa jarðsöguna um eyju og dranga í
dag eins og í Vestmannaeyjum. Dyrhólaey er stór
Urn sig og há, er hún með þverhníptum hamraveggj-
Urn v.ðast, en að austan er hún lág og sléttlend.
Dyrhólaós liggur að eynni að austanverðu, og hef-
er þar útfall í sjó á stundum, en aðra tíma kæfir
' útfallið með sandi; þá er sagt að Ósinn sé uppi,
°9 verður hann þá djúpur og víðáttumikill, þar til
hann brýtur sig út eða er mokaður.
Það þykir mörgum fagurt um að litast af Dyrhóla-
eV. og sjálf er eyjan með dröngum, listaverk frá
náttúrunnar hálfu.
Dyrhólagat, sem er syðst á eynni, er sérstætt fyrir-
b^ri og á engan sinn líka hér á landi. Viti var fyrst
reistur á Dyrhólaey 1910, en 1927 var reistur nýr
vifi miklu fullkomnari.
Lýsir hann sæfarendum um langa vegu í dimm-
viðn og á vetrarnóttum.
Farið var til fugla í Dyrhólaey fyrrum og sigið eft-
lr fýlsunga, en nú er því hætt og fýllinn fær að fljúga
°áreittur af mönnunum.
Upp úr síðustu aldamótum fór krían að verpa í
eyjunni, en er nú öll á bak og burt. Krían átti þátt
1 Pví að eyjan greri upp, þar sem hún var ber og
Dyrhólaey, þar dreymir Mýrdælinga um að gerS verSi höfn.
blásin víða, og nú má segja að Dyrhólaey sé al-
gróin.
Lítilsháttar æðarvarp var í Dyrhólaey að austan-
verðu. Var um t;ma hlynnt að því af landeigendum,
og óx þá varpið, en svo lagðist það niður og er
það nú lítið sem verpir þar af æður.
1924 var háð íþróttamót í Dyrhólaey, austur á
láginnf. Þá kom ég fyrst út í Eyju og fannst mikið
til koma.
Síðar vann ég þar að vitabyggingunni, og bjó í
tjaldi ásamt mörgum verkamönnum. Þá kynntist ég
Dyrhólaey af sjón og raun.
Guðmundur Hjaltason kom austur í Mýrdal 1916,
gisti hann hjá foreldrum mínum í Reynisdal. Ég man
það enn, að um morguninn, þá er hann var kominn á
fætur, horfði hann til Dyrhólaeyjar og sagði: „Hér
er fagurt útsýni til Dyrhólaeyjar og Dyrhóladranga."
Svo mun og mörgum finnast enn.
Dyrhólaviti reistur áriS 1927.
19