Æskan - 01.10.1975, Qupperneq 53
Herra ritstjóri!
Mér datt í hug að senda ykkur
smásögu, sem ég samdi sjálfur. Ég
vil senda þér kærar þakkir fyrir
þetta ágæta blað. Ég er umboðs-
maður blaðsins hér á Hellissandi
og er þetta blað eitt það vinsælasta
í hreppnum. Krakkarnir bíða spennt-
ir eftir hverju nýju blaði, sem kem-
ur út.
Það er bráðnauðsynlegt að hafa
svona barnablað í-landinu, sem
bendir þeim ungu á hættuna, sem
stafar af notkun tóbaks og áfengis.
Og að lokum vona ég, að þetta
blað komist inn á hvert barnaheim-
ili landsins, og hafi sem mest áhrif
á börnin, þannig að hvert einasta
mannsbarn taki þá mikilvægu
ákvörðun: ,,Að neyta aldrei tóbaks
eða áfengis."
Við ungmennin í landinu ættum
að taka okkur öll saman og berjast
gegn áfengis- og tóbaksneyslu,
sem skaðar fjölda manns.
„Sækjum fram, berjumst til sig-
urs.“
Með kærri kveðju,
EðvarS Ingólfsson, (15 ára),
Hellisbraut 16,
Hellissandi.
DÝRiN í ÞJÓNUSTU MANNANNA
VÖRUFLUTNINGAR f PERÚ
ÞekkirSu hann Mikka? Hann er Iftill og þrekiegur náungi með eirrauða
húð og þykkt svart hár. Hann er indiáni og talar mál Perúindíánanna. Ef
þú skreppur til Perú, þá rekstu ef til vill á hann, þar sem hann kemur
gangandi og teymir á eftlr sér langa röð af gráum, hvftum og svörtum
lamadýrum. Þessi lamadýr bera tvær töskur hvert, og f þessum töskum
eða pokum er heilmikið af mafs og kartöflum. Mikki býr hátt uppi f fjöil-
um, og ef hann hefði ekkl lamadýrln gætl hann ekki með nokkru móti flutt
afurðir sínar niður á markaðstorgið f bænum, sem stendur djúpt niðri I
dalnum — nema því aðeins að hann bæri sjálfur elnn og einn poka þangað
niður, en heist vill hann nú komast hjá þvf!
Lamadýrin eru einu dýrin, sem geta borlð þungar byrðar eftlr hinum
háskalegu stfgum, sem iiggja örmjóir f gegnum fjallaskörðin. Og Mikki
mundi ekkl geta lifað án aðstoðar þeirra.
rúm í baráttunni við náttúruöflin sjálf, kunn og ó-
Kunn.
Hann hóf flugnám í Saralov við Volgu, fyrst svif-
flug og fallhl.farstökk úrflugvéium. Flugfþróttin gagn-
tók hann. Hún átti hug hans allan. Hann komst í
flugskólann í Orenborg og gerðist árið 1957 flug-
^naður í rússneska hernum. Fór þar brátt orð af
honum sem afburða flugmanni og siglingafræðingi.
Svo hvarf hann skyndilega sjónum manna og gerð-
'st einn af geimförunum tilvonandi, er lutu meiri aga
°S þjálfun en áður voru dæmi til. Kona hans, Valen-
f'Ua, hafði þá enga hugmynd um, hvað Juri aðhafð-
'st. Daginn, sem frásögnin um geimför hans skartaði
£ forsíðum allra dagblaða veraldarinnar og barst
Urri heim allan á öldum Ijósvakans, varð einn af
Qtönnum hennar til þess að fræða hana um, að
^aður hennar hefði fyrstur allra lokið geimför um-
bverfis hnöttinn.
Gagarin fór ekki fleiri ferðir eftir hið mikla afrek.
Honum var nefnilega falið það örðuga og ábyrgðar-
mikla starf að þjálfa væntanlega geimfara af báð-
um kynjum. Nemendur hans áttu fyrir sér að fara
miklar frægðarferðir um himingeiminn. Þeir deildu
frægðinni með kennara sínum, hinum gifturlka braut-
ryðjanda.
Juri Gagarin, hinn þrekvaxni, háttvlsi geimfari,
vann látlaust milli himins og jarðar, meðan honum
entist aldur til. Venjuleg æfingaflugferð varð loka-
för hans í þessu Hfi. Hin stórkostlega tækni, sem
leitt hafði til sigursins mikla 12. apríl 1961, brást
honum í hversdagsönninni 27. febrúar 1968, þegar
minnst vonum varði. Talið er, að honum hefði verið
í lófa lagið að bjarga lífinu með þvl að stökkva út
úr vélinni, eins og hann hafði svo oft áður gert. En
hann kaus heldur að reyna að bjarga farkosti sín-
um, reynast starfi sfnu trúr til hinstu stundar.
51