Æskan - 01.10.1975, Page 66
I
Af hverjum tðlf mönnum, sem reykja
einn pakka af sigarettum daglega mestan hluta ævi
sinnar, eru likur til að einn deyi úr lungnakrabba.
Úrþrjátfu þú sund manna hópi, sem
aldrei hefur reykt sigarettur, eru líkur til
að einn deyi úr lungnakrabba.
konum og körlum. Það er staðreynd, ára aldur en sá, sem ekki reykir-
að ótímabær dauðsföll meðal karl- 25 ára maður, sem reykir ekki, á í
manna, á aldrinum 35—60 ára, vændum að lifa 48,6 ár, en maður,
standa í sambandi við sígarettu- sem reykir 20 sígarettur á dag, má
reykingar. Reykingamaður er í þre- búast við að lifa 40,4 ár. Mismunur-
falt meiri hættu að deyja um 45 inn er 8 ár.
í Amerísku skurðlæknafélags-
skýrslunni 1964 voru dregnar sam-
an niðurstöður 7 stórfelldra rann-
sókna, þar sem yfir 1 milljón manns
var fylgt eftir í fjölda mörg ár og
reykingavenjur þeirra nákvæmlega
skráðar. 65 þús. þeirra manna dóu
á tímabilinu og heildardauðsfalla-
talan var 70% hærri hjá þeim, sem
reyktu sígarettur. Hjartasjúkdómar
voru langstærsti þátturinn i þess-
ari auknu dauðsfallatölu, eins og
kom fram í athugun, sem 34 þús.
breskir læknar gerðu og sýndu fram
á, að karlmenn, sem reyktu, fengju
helmingi oftar hjartaskemmdir en
þeir, sem ekki reyktu. Rannsóknir í
héruðum Albany og Faringham í
Bandaríkjunum hafa sýnt, að bæði
banvæn og misalvarleg hiartaáföll
eru tveimur og hálfum sinnum al-
gengari meðal reykingamanna en
þeirra, sem ekki reykja. Hætta á
blæðingu í hjartavöðvann er 3—5
sinnum algengari hjá þeim, sem
reyktu sígarettur en hinum sem ekki
reyktu. Afleiðingar reykinga, sem
verða mestar hjá ungu fólki, standa
í beinu sambandi við hvað mikið
er reykt, og kemur jafnt niður á
Það nikótínið í tóbakinu, sem
hefur bein áhrif á hjartað. Það eyk-
ur púlshraðann um 15—25 slög á
mínútu, eykur blóðþrýstinginn lítið
eitt og eykur afköst hjartans og þar
með álag þess. Kólestrolmagn
blóðsins er óbreytt eftir reykingar,
en flestir vfsindamenn haifa fundið
að meðaltalið liggur hærra en hjá
þeim, sem reykja ekki.
Meinafræðileg rök fyrir því að
æðakölkun aukist í hlutfalli við
reykingar eru mótsagnakennd og
tilraunir hafa ekki leitt það í Ijós
með neinni vissu. Reykingar virð-
ast ekki eiga neinn öruggan þátt
í háum blóðþrýstingi, en þar sem
hann eykur hættuna á kransæða-
sjúkdómum, stuðlar hann, ásamt
sígarettunum, að því að auka hana.
Reykingar valda samdrætti í har'
æðunum í húðinni og þetta stuðlar
að lélegri slagæðablóðrás til út-
limanna. Hjá sumum sjúklingum
kemur hjartakvöl nokkrum sekúnd-
um eftir að þeir byrja að reykja
sígarettu eða vindil.