Æskan

Volume

Æskan - 01.09.1976, Page 15

Æskan - 01.09.1976, Page 15
>n í þotunni en Ósk hægra megin. Síðan sögðu þau hvort öðru hvað markverðast væri að sjá. Enn voru bornar fram veitingar. Þau fengu snittur og gos- drykki. Börnunum fannst fullmikið í þetta lagt, þar sem flugleiðin milli Oslóar og Stokkhólms tók aðeins 40 mín. Ósk hafði orð á því að þegar Rögnvaldur f,ygi frá ísafirði til Reykjavíkur tæki flugferðin svip- sðan tíma. Hins vegar væri enginn matur fram bor- inn á þeirri flugleið. Sveinn upplýsti þá að á innan- tandsflugleiðum væru ekki veitingar; fólk kæmi pakk- satt að heiman og færi venjulega í heimsókn til vina °9 kunningja! Eftir lendingu á Arlanda-flugvelli ók þotan á stæðið °9 dyrnar voru opnaðar. Hitabylgjan gaus á móti börnunum þegar þau gengu út og stigu í fyrsta sinn a sænska jörð. Þarna var Ólafur Friðfinnsson fulltrúi Elugleiða i Stokkhólmi mættur ásamt konu sinni, Unni Aðalsteinsdóttur, og þau heilsuðu þeim Rögn- valdi og Ósk með virktum. Þarna var líka mættur Ijósmyndari og blaðamaður frá Dagens Nyheter. Eftir að þau höfðu farið í gegnum vegabréfaskoðun, sem ekki reyndist sérlega erfið því ekki þurfti annað en segja orðið „ísland“, var þeim vísað „inn í land- og svo í tollskoðun. Tollvörðurinn var mjög vin- Qjarnlegur. Hann benti þeim brosandi að taka föggur s,nar í gegnum tollhliðið, þar hittu þau starfsmenn ^agens Nyheter. Blaðakonan hét Eivör Seriquist en karlmaðurinn hét Bertil Filobelli. Þau Eivör og Bertil buðu börnin hjartanlega velkomin til Svíþjóðar °9 brátt voru þau komin á fleygiferð inn í borgina. Eertii ók stórum Volvo og það var ekki að sökum að spyrja að hann var brátt kominn á 140 km hraða. Svo ^att höfðu þau aldrei farið í bíl. Leiðin lá um fallega sveit, þar sem skiptust á tún, akrar og bændabýli. ^ertil sagði börnunum ýmislegt um Svíþjóð og um bað sem fyrir augun bar sem jafnóðum var þýtt fyrir tau. Annars fannst þeim sænskan furðu-skiljanleg ef hægt var talað, og þau voru full eftirvæntingar 6ft,r framhaldi ferðarinnar. „Hvar er Stokkhólmur?" Sa9ði ósk. „Eftir 10 mínútur" var svarið. Og eftir 10 ^'nútur nákvæmlega voru þau í útjaðri stórborgar- lrinar. Nú blöstu við gamlar og nýjar byggingar. Turn- ar> virkisgarðar og sfkin frægu, vötn og skógar. Eins e9 allir vita er borgin Stokkhólmur byggð á mörgum hólmum og Riddarafjörðurinn, sem gengur inn úr sföðuvatninu Málaren liggur í gegnum borgina. Bertil Sa9ði þeim frá höllinni ( Haga þar sem Kissinger, ufanríkisráðherra Bandaríkjanna, bjó um þessar h’nndir. „Þarna hefur forsetinn ykkar, Kristján Eld- Þeim Ósk og Rögnvaldi þótti gott aS geta gengiS léttklædd um borgina. Hér bíSa þau eftir „grænu" til þess aS kom- ast yfir mikla umferSargötu. járn, lika búið“, sagði Bertil. Talið barst að kóngin- um og þau Rögnvaldur og Ósk voru full eftirvænt- ingar að sjá konungshöllina. Þess var heldur ekki langt að bíða að sú mikla, fallega bygging kæmi í Ijós. Bertil ók ekki beint til gistihússins, heldur fór hring um borgina. Sagði þeim margt og sýndi og sagði sögu húsanna. Þau sáu Óperuna, Þjóðleikhús- ið, Ríkisbókasafnið og að lokum stönsuðu þau við glæsilega byggingu, þau voru komin að Hotel Birger Jarl. Þau fengu klukkutíma hvíld á hótelinu, sem var vel búið og mjög nýtískulegt. Allt hreint og fágað svo sem best gerist og svo sem vera ber. Síðan fóru þau niður í anddyrið þar sem þau hittu Bertil að nýju og nú var haldið út í borgina. Enn sýndi hann þeim ýmislegt skémmtilegt en brátt var stansað við 25 hæða hús, aðalskrifstofu og prentsmiðju Dagens Nyheter. Þau fóru að hitta Hans-lngvar Johnson, aðalrit- stjóra blaðsins. Þarna hittu þau líka aftur Eivöru, sem tekið hafði á móti þeim á flugvellinum. Hans-lngvar Johnson tók við aðalritstjórn Dagens Nyheter fyrir ÆSKAN - Símanúmer afgreiðslu blaðsins er 17336. 13

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.