Æskan - 01.09.1976, Blaðsíða 27
MÐ
^ÖJTGERÐIR
Þau eru ung og leika sér.
að ræða sædýr, fiska og seli. Aðsóknin varð þegar f
byrjun svo góð og áhugi almennings svo mikill, að
safnið hefur smátt og smátt getað fært út kvíamar
með fjölgun tegunda, og hefur nú til sýnis ýmsar
landdýrategundir, eins og hreindýr, ísbirni, simpans-
apa, Ijón, refi og ýmsar tegundir fugla, auk innlendra
húsdýra svo eitthvað sé nefnt.
Eins og áður er getið er Sædýrasafnið sjálfseignar-
stofnun. Alit fjármagn, sem inn kemur, fer til frekari
endurbóta og uppbyggingar. Aðdragandann að stofn-
un Sædýrasafnsins má rekja til ársins 1964. Það ár
kom Hjálparsveit skáta í Hafnariirði á fót fiskasýn-
ingu og var hún til fjáröflunar fyrir starisemi sveitar-
innar. Þessa sýningu sóttu yfir 26 þúsund manns. Þær
undirtektir almennings voru langt umfram vonir.
Sýningu skátanna var ekki unnt að hafa opna nema
í fimm vikur, bæði vegna staðsetningar og vegna ó-
fullkomins útbúnaðar. En fljótlega að þeirri sýningu
lokinni fóru ýmsir þeir, sem að fiskasýningunni stóðu,
að velta því fyrir sér, hvort ekki væri unnt að koma
upp varanlegu sædýrasafni. Ekki þótti rétt að skáta-
^SKAN - Mlnnlst þess, atS ÆSKAN er og verður alltaf ykkar blaö.