Æskan

Årgang

Æskan - 01.09.1976, Side 36

Æskan - 01.09.1976, Side 36
AÐ TAKA Á MÓTI SLÁTRINU Þegar sláturs er von eru allir pottar, balar, fötur og brúsar þveg- ið sem best og skolað úr heitum vötnum. Hn far, nálar, saumgarn og gisið léreft, þvegið og soðið, er haft tilbúið í eldhúsinu. Rúgmjöl, hveiti, haframjöl, salt, pipar og laukur er einnig haft við höndina, svo allt geti gengið sem best. Þegar slátrið kemur heim er hið fyrsta verk, sem gera þarf, að salta blóðið. Lokaður hnefi af salti í hvert kindarblóð. BLÓÐMÖR Blóðið er mælt og þvi hellt gegn- um sigti í balanum, sem hræra á i. Einn kaffibolli af vatni er látinn móti 11/3 I af blóði. % rúgmjöl og 1/4 haframjöl er hrært út í blóðið og jafnað vel þangað til sleifin stendur ein, þó maður sleppi henni snöggvast. Mörinn, sem er brytjað- ur og kirtlar teknir frá, er látinn út í eftir vild, einnig rúsínur í suma keppina. Ráðlegast er að láta ekki rúsínur í þá keppi, sem á að súrsa. Keppirnir eru fylltir að % og saum- að fyrir þá, látnir ofan í sjóðandi saltvatn og látnir sjóða í 3—31/4 tíma. Bæta þarf vatni við og við í pottinn (heitu). Stinga þarf á keppina svo vömbin springi ekki. Keppunum er raðað á fjöl eða borð til að kólna. Venjulega gengur af blóðinu þegar búið er að fylla upp í keppina og eru þá saumaðir léreftspokar. Þá má næstum fylla og binda vel fyrir þá, en mjöli er betra að bæta í blóðið, sem í þá er látið. Pokarnir eru soðnir í 4 tíma, dálítið kalt vatn og þeim flett af blóðmörnum strax. Keppirnir eru geymdir í vatni með örlitlu af ediki út í. LIFRARPYLSA Lifrin og nýrun eru þvegin vel og himnur teknar af, skorin í bita og hökkuð 2—3 í vél. 1/2 I mjólk og ögn af vatni er blandað með 1/2 litlum bolla af salti móti hverri lifur. Þessu er hrært út í lifrina og 34 rúgmjöl og 14 hveiti jafnað vel saman við. Mörinn látinn í eftir geð- þótta. Þetta er falið upp í vinstrarn- ar og langana, og poka ef þörf gerist, og soðið í 2%—3 tíma. Langarnir ekki svo lengi. Sumum þykir gott að láta ögn af kúmeni í lifrarpylsuna. Bragðið á hrárri lifrarpylsu til þess að vita hvort hún er mátulega sölt. Hún þarf að hrærast nokkuð þykk. Sláturtíðin er byrjuð. Nógur góður og hollur matur. ÆSKAN - Munið hina stóru bókaskrá blaðsins fyrir árið 1976*

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.