Æskan

Árgangur

Æskan - 01.09.1976, Síða 44

Æskan - 01.09.1976, Síða 44
Guðmundur Gíslason Hagalín. stjóri Æskunnar. Ég sá strax, að hún breytti um svip og skildi, aS hinn nýi ritstjóri vildi með breyting- unni koma til móts við breytta tíma og aldaranda. Um hríð óttaðist ég, að þessi viðleitni færi út í öfgar, þannig að ekki fengju í blaðinu nægilega rúmgóðan og virðulegan sess hin nauð- synlegu siðrænu og menn- ingarlegu sjónarmið. En þessi ótti minn hefur reynst ástæðulaus. Um leið og hið nýja snið og efnisval blaðs- ins hefur aflað því auk nna vinsælda, hefur það stækk- að og aukist á ný hlutur þess efnis, sem ekki má verða eins og hólmar í „þanghaf- inu“, heldur á að verða sem gróðursælar og gjöfular varpeyjar, þar sem hið ann- að efni sé hliðstætt þeim marglitu veifum, dunandi rellum og gljáandi glitstássi, sem kunnáttusamur og reyndur eyjabúi kemur upp í varplandi s nu til þess að laða fuglinn að. Nú er það komið stærð, smði og efniskostum Æsk- unnar, ao með síauknum vinsældum sínum hefur hún skilyrði til að verða áhrifa- ríkari en nokkru sinni áður. Ritstjórinn hefur sýnt og sannað óvenjulegan og ómetanlegan skilning á því, hvernig slík blöð þurfi að gera úr garði til þess að það ÆSKAN - Hægt 42 fái staðist harða samkeppni og um leið rækt á verðugan hátt hlutverk sitt. Ég minnist sem sé með þakklæti gamalla kynna af Æskunni, en þakka þó fyrst og fremst starfið í gær og í dag og óska blaðinu og að- standendum þess heillar.kr- ar framtíðar. MCRGUNBLAÐIÐ skrifar: Yfirleitt er Æskan svo fjölbreytt að efni og skemmtilegt að frágangi að furðu sætir, og ber ritstjóra srnum Grími Engilberts fag- urt vitni. Vafasamt er, hvort nokkurn tíma hefur komið út skemmtilegra barnablað á islandi. Hvert blað Æskunnar er gríðafjölbreytt, og sýnir eins og ritstjóri hennar vinni hvert kraftaverkið á fætur öðru við blaðið. Það er undravert, að hægt sé að gefa út svona fjölbreytt barna- og unglingablað á ís- landi, enda sýnir útbreiðsla Æskunnar, að unga fólkið kann að meta hana. 1 ÞJÓÐVILJINN skrifar: Síðasta tölpblað Æskunn- ar hefur borist blaðinu, geysifjölbreytt að vanda. Ritstjóri, Grímur Engilberts, sýriir enn einu sinni, að hægt er að gefa út skemmti- legt blað fyrir börn og ungl- inga á fslandi. VESTFIRÐINGUR á ísafirði skrifar: Vestfirðingi hefur borist barnablaðið Æskan. Eins og æt ð er þetta blað fjölbreytt að efni og í því margar skemmtilegar og fallegar myndir. Æskan er elsta barnablaðið hér á landi, og hún er jafnframt besta barnablaðið. VERKAMAÐURINN á Akur- eyri skrifar: Síðasta hefti Æskunnar hefur borist, að vanda með margvíslegu vönduðu efni, sem of langt yrði hér upp að telja. Upplag blaðsins segir söguna um vinsældir blaðs ins, en enda þótt það sé vitaskuld mest lesið af börn- um og unglingum, þá er einnig víst, að það á örugg- an lesendahóp meðal full- orðinna. Og það þarf víst ekki að skýra fyrir neinum, að blað, sem nýtur vinsælda fólks á öllum aldri, er vel úr garði gert. DAGUR á Akureyri skrifar: Æskan flytur margs konar efni að vanda og er ánægju- legt að blaðið þjóni hlut- verki sínL. við yngstu kyn- slóðina jafn vel og raun ber vitni. Æskan er mjög mynd- skreytt og flest börn munu finna ,þar eitt og annað við sitt hæfi. BlaðiS FAXI i Keflavlk skrifar: Að öllum sambærilegum blcðum og tímaritum ólöst- uðum, er Æskan tv.'mæla- laust besta barnablaðið, sem út er gefið á fslandi í dag. Flytur það ávallt mikið af hollum fróðleik, innlend- um og útlendum, og öðru skemmtilegu lestrarefni fyr- ir börn, og reyndar ættu fuilorðnir einnig að ha 3 yndi af að lesa þetta van aða og góða blað, enda það stóran og vaxandi ie® endahóp víðsvegar um lan ið. í Keflavík munu nú vera hátt á fimmta hundrað kaup endur að Æskunni og s'*e bætist við þann hóp. Þann'9 mun það einnig vera á ö um útsölustöðum á Suðu^ nesjum. Faxi vill með um línum hvetja unga se aldna ti! að Ijá þessu merK útgáfustarfi lið með Þvl a fjöiga enn kaupendum \>esS' svo það verði helst keyp1 0 lesið á hverju heimili- framsóknarblaðið i Vestmannaeyjum skFfar’ Æskan á erindi á hve heimili landsins, skal vakin á því, að Æs er stærsta og vandaðas barnablað, sem gefið er á Norðurlöndum. er að fá fjölda eldri árganga blaðsins fyrir lítið vcf®*

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.