Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1976, Side 66

Æskan - 01.11.1976, Side 66
E inu sinni var maður. Hann átti engi, sem var hátt uppi í hlíð, og á enginu var heyhlaða, sem hann geymdi heyið af enginu í. En það hafði ekki verið mikið í hlöðunni þeirri síðustu árin, því hverja Jónsmessunótt, þegar átti að fgra að slá og grasið var orðið vel sprottið, þá bar svo viö, að allt engið var uppnagað, eins og gengið hefði á því fjöldi fjár dögum saman. Þetta kom fyrir einu sinni og þaö kom fyrir aftur, en svo varð maðurinn leiður á þessu og sagði við syni sína, en af þeim átti hann þrjá, að nú yrði einn þeirra að gæta engisins um Jónsmessunóttina, því sér fyndist alveg ógerlegt að láta éta upp allt þetta indæla gras fyrir sér enn eitt árió. — Nú varð að gæta vel að, sagði maðurinn. Jæja, nú vildi sá elsti fara að gæta engisins, og hann hét Páll. Hann sagðist skyldu gæta þess, að ekki yrói bitið upp allt engið, gæta þess svo vel, að hvorki menn, skepnur, né skollinn sjálfur fengi eina einustu heytuggu. Þegar leið að kvöldinu, labbaði Páll sig út á engið og settist inn í hlöðu, en þar fór hvorki betur né verr fyrir honum en að hann sofnaöi, en þegar skammt var liðið á nóttu, kom svo mikill jarðskjálfti með braki og brestum, að Páli varð ekki um sel og tók til fótanna eins hratt og hann komst, hann þorði ekki einu sinni að líta við, og auðvitað var ekki stingandi strá eftir á enginu um morguninn, frekar en vant var. Næsta Jónsmessukvöld sagði bóndinn aftur, að það gæti ekki gengið að missa svona heyið af enginu ár eftir ár, og nú væri ekki um annað að gera, en að miðbróðir- inn væri á verði, og fljótt frá sagt fór alveg á sömu leió fyrir honum. Hann hljóp hræddur heim, og ekkert gras var eftir á enginu. — Þá var röðin komin aó þeim yngsta, sem hét Pétur. Páll, sá elsti, hló að honum: ,,Ja, ekki held ég að þú getið mikið gætt engisins, sagði hann glottandi., „Aldrei gæti ég þess þó verr en þú gerðir," svaraði Pétur, og af staö hljóp hann, því það var farið að kvölda og skuggarnir að lengjast í dalnum. Fyrst fór hann inn ' hlöðuna og lagöist þar út af, en þegar lítil stund var liðin. byrjaði að braka og bresta, svo honum fannst það ekki fi4

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.