Æskan - 01.10.1977, Blaðsíða 15
Sonur
Dvrlinasins“
Það er ef til vill ekki venjulegt að tala um að dýrlingar
eigl börn — einhvern veginn virðist það ekki fara vel
saman. Við birtum hér myndir af ungum manni, sem á að
leika son Símons Templars — eða Dýrlingsins — eins
og við könnumst helst við hann. Það á að fara að taka
upp nýjan framhaldsþátt fyrir sjónvarp um þennan
^vintýramann, þ. e. a. s. nú á að yngja hann upp og
hafnið á þáttunum á að vera „Sonur dýrlingsins". Roger
Moore lék dýrlínginn í mörg ár, en svo fór hann í hlutverk
njósnarans James Bonds 007, og þá þótti tilvalið að
yngja dýrlinginn upp. Það er enski leikarinn lan Ogilvy,
sem hefur tekið að sér aðalhlutverkið í þessum nýju
þáttum. Þættirnir ku víst vera líkir þeim gömiu að efni til,
en er það ekki bara ágætt?
krók og kima. Loks hrópaði Úlla: — Skuggi. Skuggi, hvar ertu? Hún tók í
ermina á Sveini. — Hvað var þetta, Sveinn? Þau hlustuðu bæði í ofvæni.
þarna heyrðist ýlfur í fjarlægð. Úlla þaut inn í næstu geymslu.
— Komdu með vasaljósið, Sveinn. Hann er hérna!
Að innan heyrðu þau veikt ýlfur og krafs lítilla loppa. Hluti veggjarins hafði
hrunið . . . en bak við sást stórt op, svo stórt, að börnin gátu staðið upprétt
Þar inni. Þau litu forviða hvort á annað.
— Leynistígurinn! sögðu þau samtímis. Nú var mikið á séyði. Úlla hélt á
vasaljósinu mpðan Sveinn klifraði varlegayfir steinana og kom til baka með
lítinn, svartan hvolp, sem sleikti hendur hans og flaðraði upp um hann af
einskærri gleði.
— Hann hefur klemmt sig, þegar veggurinn hrundi. . . pabbi og mamma
Verða að hjálpa okkur, þó að við fáum skammir fyrir!
Riis óðalsbóndi varð myrkur á svipinn, þegar börnin komu inn með ó-
hreinan hvolp í fanginu, en hann varð svo önnum kafinn, þegar hann frétti,
3ð hvolpurinn hefði fundið leynistíginn, að hann steingleymdi að rífast. Á
^eðan hringdi frú Riis til dýralæknisins, sem kom og batt um brotinn fót
^volpsins. Hann var rétt að fara, þegar óðalsbóndinn kom Ijómandi af gleði
UPP úr kjallaranum. Að hugsa sér, dýralæknir, litla flónið fann leynistíginn,
Sem ég hef leitað að um árabil . . . Sveinn og Úlla verða víst að fá hundinn,
sem þau hafa þrábeðið mig um.
Börnin litu fyrst vantrúuð á föður sinn, en stukku svo upp um háls honum.
Og það var vel hugsað um ,,Skugga“ meðan sár hans greru.
Sæmileqt
tímakaup
Kvikmyndastjarnan . Marlon
Brando hefur fengið greitt hæsta
tímakaup sem um getur í sögu
kvikmyndanna. Fyrir hlutverk sitt
íkvikmyndinni „Superman“, sem
tók 12 daga að mynda fékk hann
greiddar rúmar 690 milljónir. Dá-
gott tímakaup það.