Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1977, Blaðsíða 44

Æskan - 01.10.1977, Blaðsíða 44
í bréfi frá Á. H. í Reykjavík er beðið um upplýsingar um lækna og læknastörf, um námið, sem liggur að baki því, og hverj- um kostum góður læknir þurfi helst að vera búinn til þess að geta innt þetta á- þyrgðarmikla starf vel af hendi. Skal nú leitast við að svara þessum spurningum og skulum við fyrst athuga undir- búningsnámið. Grunnskólanámi eða skyldunámi þarf fyrst af öllu að Ijúka með góðum árangri og síðan tekur menntaskóli við á náms- brautinni. Væntanlegur læknir þarf að Ijúka stúdentsprófi úr máladeild menntaskóla með allhárri einkunn. Læknanám krefst góðrar almennrar greindar og námshæfileika. Þegar svo komið er í læknadeild Háskóla íslands, tekur við 1 — 8 ára námstími. Skiptist hann í 3 hluta. — I. hluti: Fyrsta veturinn, sem er tvö kennslumisseri, er kennd efnafræði og almenn líffærafræði. Á öðrum og þriðja vetri (fjórum kennslu- misserum) hefur verið numih lífeðlis- fræði, lífefnafræði og líffræðafræði. — II. hluti: í öðrum hluta læknanáms er numin meinafræði, sýklafræði og lyfja- fræði og próf tekin í þessum greinum ekki síðar en 4 misserum eftir fyrsta hluta próf. í öðrum hluta stunda stúdentar verklegt nám í rannsóknastofum og sjúkrahúsum. Þá kemur að III. hluta. Þar er t. d. lögð stund á sjúkdómsgreiningar og meðferð sjúklinga. Er þá komið inn á ýmsar sér- greinar, svo sem geð- og taugasjúk- dóma, háls- nef- og eyrnasjúkdóma, augnsjúkdóma og margar fleiri greinar koma til. Þá verða og stúdentar að taka þátt í almennum störfum sjúkrahús- lækna í a. m. k. 8 mánuði í þessum hluta námsins. Margir íslenskir læknar leita sér fram- haldsmenntunar í einhverjum sér- greinum og tekur það nám oft u. þ. b. 4 ár. Eru því læknar oft um það bil 35 ára, þegar þeir fara að stunda læknastörf sem sérfræðingar. Góður læknir þarf að vera traust- vekjandi maður, ef svo mætti segja, því að mikils er um vert að sjúklingur treysti lækni sínum. Hann þarf að vera mann- þekkjari góður og mannvinur. Næman skilning þarf læknirinn að hafa á sálarlífi annarra og gott er það fyrir hann, að hann hafi áhuga á félagsmálum í h®ra sínu. Að sjálfsögðu þarf læknir að v samviskusamur maður og ábyggi16^ hvívetna. Laun lækna eru allhá, e° langt nám að baki.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.