Æskan - 01.07.1978, Qupperneq 20
“ AÐ HAFÐI lengi verið hallæri
mikið í landinu, þar sem Bessi átti
heima, og honum gekk mjög erfiðlega
að afla matar handa fjölskyldu sinni.
Dag nokkurn, er hann horfði örvænt-
ingaraugum á haf út, sá hann að upp
kom skammt frá landi ey ein lítil, sem
á var stórt og mikið pálmatré. Hann
ákvað að reyna með einhverjum
ráðum að komast út í ey þessa og
klifra upp í pálmann, ef vera skyldi,
að hann fyndi hnetur, er satt gætu
sárasta hungrið. En ekki vissi hann,
hvernig hann mætti komast þangað.
Er Bessi kom niður í fjöruna, sá
hann þar bátkríli, sem hann ákvað að
reyna. Gekk feröalagið illa fyrst í stað,
í sex skipti skoluðu öldurnar bátnum
KOLBJÖRN
OG BESSI
til baka upp á ströndina, en Bessi var
þrautseigur og gafst ekki upp. í sjö-
unda sinn gekk betur, og komst hann
nú loks út í eyna. Batt hann bátinn við
trjástofninn og kleif að því búnu upp
pálmann. Tíndi hann margar hnetur
og lét þær falla niður, ætlaði að hitta
bátinn, en ekki tókst betur til en svo,
að hver einasta hneta fell í sjóinn og
sökk. Bessi miðaði síðustu hnetunni
mjög vandlega, en allt kom fyrir ekki,
hún lenti líka utanborðs. Hann hafði á
engri bragðað, og nú varð hann svo
örvæntingarfullur, að hann kastaði
sér í sjóinn líka, því að hann gat ekki
hugsað sér að fara tómhentur heim.
Bessi varð ekki lítið undrandi, er
hann, í stað þess að drukkna, stóð allt
í einu á sjávarbotni og sá þar skammt
frá sér lítið snoturt hús. Kom gamall
maður út úr húsi þessu og spuröi,
hvers hann þarfnaðist svo mjög, að
hann kæmi alla leið til kofa Kolbjarnar
til þess aö leita þess. Bessi sagði sínar
farir ekki sléttar, og hlýddi Kolbjörn
með samúð á mál hans. Fór hann
síðan inn í kofa og sótti pott einn
fagran og gaf Bessa; kvað Kolbjörn
hann aldrei mundu þurfa að svelta
framar, því að potturinn myndi sjá fyrir
því. Var Bessi þakklátur mjög og
kvaddi gamla manninn með virktum.
Ekki var Bessi fyrr kominn upp í
bátinn aftur, en hann vildi reyna pott-
inn. Sagói hann því: „Sjóddu, pottur,
saðning dýra.“ Komu þá á auga-
bragði alls kyns kræsingar, og saddi
Bessi hungur sitt og var hinn glaðasti.
Er hann kom í land, varð honum
fyrst að hugsa um að hlaupa heim
með pottinn og gefa fjölskyldunni
ríkulega máltíö, en svo varð sjálfs-
elskan öllu sterkari. „Hvernig færi
nú," hugsaði hann, „ef ég sóaði
öllum töfrum pottsins á aðra og hefði
ekkert eftir sjálfur! Nei, þá er betra, að
þetta sé leyndarmál, því að þá get ég
alltaf fengiö mér að borða, þegar eg
kæri mig um.“ — Hann fór því og faldi
pottinn.
Þegar hann kom heim, lést hann
vera þreyttur mjög og soltinn. Ekkert
matarkyns var til á heimilinu, kona
hans og börn báru sig illa af sulti, e’1
Bessi lét sér það í léttu rúmi ligðl^
Hann var sjálfur ánægður, því a
hann vissi um töfrapottinn, sem hann
var búinn að fela á herbergi sínu. E«ir
þetta fór hann einförum dagleg3'
hvert sinn og maginn kallaði á krseS
börn
ingar, og varð hann nú sællegn
degi hverjum, en kona hans og
vesluðust upp.
Það fór aó þykja grunsamlegt,
Geirfinnur, elsti sonur Bessa, ákva
að komast að hinu sanna. Hapn
breytti sér í flugu og fylgdi fö®ur
sínum um allt. Er Bessi var svangur
orðinn, fór hann inn í herbergi sitt °9
læsti dyrunum. Þreif hann nu
frano
pottinn og tók til matar síns, en Þv'
næst faldi hann pottinn og fór út, 'e
ætla að leita matar.
Um leiö og Bessi var kominn ur
augsýn, tók sonur hans pottinn °9
kallaði á fólkið. Var nú sest að snaeö
ingi og borðað mikið. Er allir v°rU
mettir, sagði húsfreyja, að nú sky
hún fara með pottinn niður í þorp
gefa hverjum máltíð, sem hafa v'
það væri rétt mátulegt á bónda sinn
Gerði hún svo, en nú varð matar
1 Q