Æskan - 01.07.1978, Page 27
Ai in
^BJÖSSI BOLLA
SUMARÆVINTÝRI
33. En hvað var nú þetta, sem kom á fleygiferð
eftir teinunum? Líklega er þetta það, sem þeir kalla
járnbrautareiðhjól? Kannski gæti ég fengið að fljóta
með til baka. Á þessu hjóli sat maður í einkennis-
búningi járnbrautanna.
34. „Nei! hó! taktu mig með góði maður ég þarf að
ná lestinni." Og Bjössi veifaði og hrópaði til
mannsins eins hátt og hann gat. Maðurinn stansaði
alveg hissa á því að hitta fáklæddan strák þarna úti í
óbyggðum skógarins.
35. Jú, tiann mátti gjarnan hoppa upp á hjól og
halda sér fast, sagði ókunni maðurinn. Og á
leiðinni fékk hann að heyra alla söguna um týndu
buxurnar og kapphlaupið mikla, sem Bjössi vann,
án þess þó að vita eiginlega af því.
36. Þeir komu fljótlega til járnbrautarstöðvarinnar.
Þar fékk Bjössi að vita að næsta lest færi ekki fyrr en
seint um kvöldið. Hann tók því með ró og settist á
bekk undir stöðvarklukkunni.
Texti: Johannes Farestveit. — Teikn.: Solveig M. Sanden.