Æskan - 01.07.1978, Síða 34
Tina Charles
Fáir diskótónlistarmenn hafa hlotið
aðra eins óhemju frægð og lágvaxna,
feitlagna diskósöngkonan Tina
Charles. Hún sló fyrst í gegn árið
1975, og upp frá því hafa metlögin
streymt frá henni. Þar má nefna You
Set My Heart On Fire, I Love To Love
(sem er eitt vinsælasta lag hennar) og
Dance Little Lady. ( söng Tinu gátu
flestir fundið eitthvað við sitt hæfi.
Það er meira en sagt verður um fleiri
diskósöng,,krafta“ (sbr. starfskraft-
ar), svo sem Donnu Summer o.fl.
Tina Charles fæddist í miðborg
London, en var alin upp í Essex.
Skemmtanabransinn hefur verið
hennar ær og kýr frá 13 ára aldri, en
eins og áður sagði varð hún aldrei
neitt sérstakt númer fyrr en 1975.
Hún segir diskótónlist einmitt vera
við sitt hæfi, en henni er meinilla við
þann stíl sem bandarískar diskó-
söngkonur hafa tamið sér, að leggja
megináherslu á kynþokkann. ,,Ég lít
ekki vel út í silfurfötum og ég hef lítinn
kynþokka, ég er aðeins venjuleg
stúlka sem getur sungið".
Tina er gift og eiginmaðurinn leikur
TINA
CHARLES
á gítar í lítt þekktri grúppu. Þau ku
vera ákaflega hamingjusöm. ,,Ei9in'
lega er þetta villta líferni ekki við h1'11
hæfi", segir Tina. „Draumur minn
hefur alltaf verið að eignast heimili og
annast það. Ég nýt þess að hvíla mig 1
rólegheitunum heima og horfa a
sjónvarpið, en nú þarf ég sífellt aö
vera á flakki um allar jarðir. Mér líkar
þetta illa. En það er víst ekki fallegtaö
fárast yfir velgengninni, því einn góö'
an veðurdag verð ég aftur bara Tina
Charles og get lifað í friði. Ég hlakka
mikið til þeirrar stundar þegar ég 9et
farið ótrufluð út í matvörubúðina an
þess að sífellt sé verið aö kvabba 1
manni, biðja um eiginhandaráritamr
og annað slíkt. Þá verður gaman að
lifa".
_ÁKS.
Ungan poppara langaði til þess að sýna öðrum hæ,r"
sína, og safnaði saman hópi fólks og lét hlusta á sig- Ett,r
smátima sér hann að allt fólkið heldur fyrir eyrun, nema
einn maður. Þá heyrir hann að einn áhorfenda spyr
hvernig honum líki. Ha, segir hinn, fyrirgefðu, ég er
heyrnarlaus.
Verðlaunagetraunir
Hlutirnir eru. Verðlaunagetraun þessi, sem birtist í
mars blaðinu, var mjög vinsæl, ef marka má hina miklu
þátttöku. Þessi nöfn komu upp: Berta Kjartansdóttir,
Gilsbakka 8, 740 Neskaupstaö, Jakob R. Atlason, Búða-
vegi 30, Fáskrúðsfirði, Jón Jónsson, Brandaskarði,
Skagaströnd, A.-Húnavatnssýslu, Ragnheiður Skúla-
dóttir, Norðtungu II, Þverárhlíð, Mýrasýslu, 311 Borgar-
nesi, Nína Karen Grétarsdóttir, Hraunbæ 53, 110
Reykjavík, Eydís Guðmundsdóttir, Sunnuvegi 16, Sel-
fossi, Árnessýslu, Helga Ágústsdóttir, Bröttugötu 45, 900
Vestmannaeyjum, Friðrik R. Friðriksson, Grundargötu
50, 350 Grundarfirði, Helga Kristín Stefánsdóttir, Þóru-
stöðum I, Eyjafirði og Halldór S. Kjartansson, Steina-
gerði 10,108 Reykjavík.
Verðlaunakrossgáta nr. 15. Úr réttum lausnum v°rU
dregin eftirtalin nöfn: Þórunn Herdís Hinriksdóttir, Tth
Völlum, 531 Hvammstanga, Júlía Skúladóttir, Kirkjuve9'
2, 625 Ólafsfirði, Guðmundur E. Björnsson, Hvítada1'
Saurbæ, Dalasýslu, Gunnar B. Jónsson, Smáratúni ■
230 Keflavík, Anna Magnúsdóttir, Skúlaskeiði 6, 22
Hafnarfirði, Jóhanna Pálsdóttir, Gilsbakka 24, Seyö'5
firði, Bergur Ragnarsson, Hálsvegi7, Þórshöfn, Hjörd|S
Anna Aradóttir, Krossi, Berufjarðarströnd, S.-Múlasýs|u'
Reynir Ólafsson, Núpi, öxarfirði, Kristján Leóssoa.
Fornhaga 20, Reykjavík, Soffía Kristín HöskuldsdóttT'
Hátúni, Árskógsströnd, 601 Akureyri, Guðmundur
Halldórsson, Syöri-Sandhólum, Tjörnesi, 641 Húsavík °9
Stefanía Sigurjónsdóttir, Felli, Skeggjastaðahreppi. Pr
Bakkafirði.