Æskan - 01.07.1978, Blaðsíða 36
Madras
• Mysore
• Tíincomale
Ceylon
W eylon er eyja í Indlandshafi, að-
skilin frá suðurodda Vestur-lndlands
af mjóu sundi, er nefnist Palk-sund.
Eyjan er rúmlega 60000 ferkm að
flatarmáli og liggur frá norðri til suð-
urs. Hún er rúmlega 400 km löng og
mesta breidd er 220 km og liggur á
milli 5. og 10. gráðu norðurbreiddar
svo að þar er fremur rakt hitabeltis-
loftslag. Suðurhluti eyjarinnar er há-
lendur og hæsti tindurinn nefnist
Pedurutalagata. Lengsta áin nefnist
Mahaveli-ganga og er nálægt 330 km
að lengd. Allmörg stöðuvötn eru á
Ceylon og sum allstór.
Fólksfjöldi nemur nú 12 milljónum
manna. Þar af eru um 70% Sinhalesar
og um 22% Tamilar ásamt nokkrum
mikið smærri þjóðernum. Langflestir
eru Búddatrúar, en einnig eru all-
margir Hindúatrúar, Múhameðstrúar
°g kristinnar trúar. Aðalatvinna er
jarðyrkja og mest uppsker fólkið af
hrísgrjónum, te, gúmmíi, kókos-
hnetum, kanil, tóbaki og kakó. All-
miklar fiskveiðar eru einnig stundaðar
í stöðuvötnunum og við strendurnar.
Iðnaður er lítill en vaxandi. Or jörðu er
unnið allmikið af grafít, en einnig
BENGAL
BA Y
CA
> COLOMBOÍ
finnst nokkuð af dýrum steinum, svo
sem rúbínsteinar, safírar, mána-
steinar, tópasar og berylar. En
helmingur íbúanna hefur þó framfæri
sitt af jarðyrkju, enda er landið vel til
slíks fallið.
Helstu útflutningsvörur eru te,
gúmmí, kakó, kanill, grafít og ýmsar
kryddjurtir. Helstu innflutningsvörur
eru sykur, vefnaðarvörur og hveiti.
Helstu viðskiptalöndin eru Kína, Ind-
land, Ástralía og breska samveldið en
te er selt víðsvegar um heim.
Gjaldmiðillinn nefnist rupee.
Landið varð hluti af breska samveld-
inu árið 1948. Aðaltungumálið nefnist
Sinhala, en Tamil-mál og enska eru
einnig mikið notuð. Kennsla er veitt
ókeypis upp að háskólastigi og fer
fram á Sinhala-máli. Árið 1966 voru í
landinu 9434 skólar með 100500
C EY LO M
kennurum, en um 40% þeirra voru
réttindalausir. Þrír háskólar eru í
landinu, sá elsti var stofnaður árið
1942 en hinir báðir árið 1959.
Árið 1967 voru 16 dagblöð gefin út I
landinu og seldust í rúmlega 500000
eintökum. Einnig voru þá gefin út um
20 vikublöð og seldust í rúmleð3
800000 eintökum. Þjóðhátíðardagur
er 4. febrúar. í fána þeirra ber mest á
gulu Kandy-ljóni á rauðum grunni-
Jaðar fánans er gulur og tvaer lóð-
réttar rendur eru í grennd við stöng-
ina, önnur græn en hin appelsínug^
Fyrir meira en 2000 árum komu
Ceylonbúar upp fullkomnu áveitukerf
á þurrasta hluta eyjarinnar og
komst þar velferðarríki á legg. En ve!-
ferðin leiddi til vanhirðu og landið féH1
órækt. Nú eru Ceylonbúar að endur'
reisa áveitukerfin og rækta land|ð
upp aftur, til að mæta auknum mann-
fjölda og líka til að draga úr innflut11'
ingi á matvælum.
Höfuðborg landsins heitir
Colombo. Hún er á vesturströndinn1
og er þýðingarmikil hafnarborg með
550000 íbúum og er í næsta nágrer,nl
við best ræktuðu hluta eyjarinnar-
Nokkrar verksmiðjur eru þar einnig en
iðnaður annars ekki verulegur. Heist'
hluti borgarinnar nefnist Virkið og er 1
grennd við höfnina. Þar var eitt sinn
allstórt víggirt svæði en víggirðing'11
var jöfnuð viðjörðu árið 1869. ÞarerU
nú helstu hótelin og stjórnarbygg'11^
arnar.
Á myndunum sjáum við kort aí
Ceylon, tetínslu, þjóðbúninga og turf1
í Virkinu. Hann er bæði klukkuturn o9
viti.
30