Æskan - 01.07.1978, Page 51
UNGLINGAREGLUSÍÐAN
IfifiAK ER HÆTTULEGT
5XRJAÐU ALDREI AÐ REYKJA
vj°baksne'
Vaxandi
ysla unglinga fer
Kn
ára^ar.niráa|drinum 11 — 13
sígareíw SU,mir að fikta við
bað fínt ' af ÞVI Þeim finnst
sjá s( °p lfi<a af því að þeir
unglinga og full-
reykti -. reykia- Maður sem
með hverju ári.
197@ einn pakka á dag árið
yfir 90 Þús-
eitur i, t0Þak-Tóbakiðerþó
bér S 6rTlmir heilsuna. Finnst
ekki,
hef^j að peningunum
Skyns;:rið hæ9f að verja á
tyrirhr 69ri hatt? — Þrátt
visjncj ° ivekiandi niðurstöður
'óbaks1719003 um skaösemi
in9um Qherferð 9e9n reyk-
lýsinq 9 margs konar upp-
reykjn r Um tjón af völdum
tóbak a’. fe Þeir sem selja
hað J*16'0 °9 meiri peninga.
HargirefUr komið í Ijós, að
i'íetta a'" erfitt með að
bmttg 9 rey^a- Taia um að
en halda svo áfram.
Fólkið
reynjr reýkir og reykir og
ln9unumað 9leyma afleið-
hóstjnn ’ En þegar þurri
koma °9 lungnakvefið
S69ja'tiiara afieiðin9arnar að
ia- bað hf-n ^um bom hugsa:
ýturaðveraalltílagi,
að fá sér reyk, fyrst pabbi og
mamma gera það. Foreldrar!
Hættið að reykja. Börnin taka
ykkur til fyrirmyndar. Margir
sjá eftir því að hafa byrjað að
reykja, en segja sem svo: það
er of seint og erfitt fyrir mig að
hætta. Það er rangt. Það er
aldrei of seint að hætta. En
minnist þess, að tóbak er
hættulegt. Byrjaðu aldrei að
reykja.
Bylgja Hafþórsdóttir.
VERSTU
ÓVINIR OKKAR
Margir unglingar byrja að
neyta áfengis og tóbaks,
vegna þess að þeir telja sig
vera komna í tölu fullorðinna.
Þeir sjá fullorðna gera þetta
og finnst þetta fínt og tilheyra
því að verða að manni. En
þetta er hættulegt og hættu-
legast er það þörnum og
unglingum. Nikótín hefur
mjög skaðleg áhrif á æðar
hjartans. Þeirra skaðlegu
áhrifa verður mest vart hjá
mönnum er reykja sígarettur
og vindla, og því meir og því
lengur sem menn reykja, því
hættara er við því að hjarta-
æðarnar þrengist eða lokist.
Einnig valda reykingar
lungnakraþba, sem dregur
manninn til dauða. Enginn
íþróttamaður, sem ætlar að
ná einhverjum árangri, notar
tóbak.
I áfenginu er eiturefni er
nefnist alkóhól. Áfengið
veldur lömum á taugakerfinu,
svo hegðun manna breytist,
og að lokum vita þeir varla,
hvað þeir segja eða gera.
Slíkt er hörmuleg sjón. Svo
lengi sem hjartað slær, heldur
lífið áfram. Þegar hjartað
gefst uþp, er lífinu lokið. i
hjartað bætast aldrei fleiri
frumur en það hafði við fæð-
ingu. Þess vegna verðum við
að varðveita það vel, til að
halda heilsu og lífi. — Áfengið
skemmir vöðvafrumur hjart-
ans. Þannig er bæði áfengis-
og tóbaksneysla hjartanu
skaðleg. öruggast er því að
venja sig aldrei á tóbak eða
áfengi. Það eru verstu óvinir
okkar.
Þóra Sveinsdóttir
Billi, sex ára gamall, hefur
etið allt það mýksta úr brauð-
sneiðinni sinni en skilur
skorpuna eftir á diskinum.
— Þegar ég var lítill
drengur, borðaði ég alltaf
skorpurnar mínar líka, segir
faðir hans.
— Þóttu þér þær góðar?
spyr stráksi.
— Já.
— Þá máttu eiga þessar,
sagði Billi og ýtti diskinum til
föður síns.
Þóra.
45