Æskan - 01.11.1979, Blaðsíða 37
I-
• ?
mrnwY
BARNAHJAL
Gunna var að hjálpa mömmu sinni
að þvo leirtau. Og svo missti hún einn
bollann í gólfið og hann brotnaöi
auðvitað. — Gunnu varð ákaflega
hverft við. Hún starði um stund á
brotin, en allt í einu Ijómaði andlit
hennar af gleði. Hún laut niður, tók
upp stærsta brotið, sem handarhaldið
hékk við, og sagði:
— Það var gott, mamma, að allur
bollinn skyldi ekki brotna.
Sjana var á fjórða ári og húri fékk að
fara út í búð að kaupa sér sælgæti.
Hún var í samfestingi, svo búðar-
stúlkan hélt að hún væri drengur og
sagði:
— Hvað ætlar þú aö kaupa,
drengur minn?
Sjana firtist stórlega og sagði með
mikilli áherslu:
— Ég er ekki drengur, ég er stúlka
innan undir.
Allt i stíl!
GAGN
OG
GAMAN
Mamma lá í spítala og hafði eignast
litla dóttur. Pabbi fór að heimsækja
hana og lofaði Sigga litla með sér til
að sjá systur sína. Siggi var aðeins
sex ára gamall. Honum leiddist hve
lengi pabbi sat hjá mömmu, svo hann
fór inn í næsta herbergi. Þar lá gömul
kona og Siggi gaf sig á tal við hana.
— Má ég sjá barnið þitt? spurði
hann.
— Ég á ekkert barn, sagði gamla
konan.
— Hvað hefurðu verið lengi hérna?
— Ég hef nú verið hér ítvo mánuði.
— Ósköp ertu lengi að þessu.
Mamma hefur ekki verið hérna nema í
tvo daga og samt er hún búin að eiga
barn.
Forngripasafnari, sem ekki
var talinn sem ráðvandastur,
var að sýna kunningja sínum
safnið sitt. ,,Nú er ég að
hugsa um að selja alla þessa
dýrgripi," sagði hann. ,,Hve
mikið heldurðu að ég fái fyrir
þá? — Gesturinn hugsaði sig
lengi um og sagði svo: ,,Ég
veit ekki. Ætli það geti orðið
minna en þrjú ár!“
Móðirin kemur heim og
finnur þriggja ára dóttur sína
grátandi. Bróðir hennar,
2 árum eldri, gefur skýringuna:
,,Hún Stína drakk upp úr
blekbyttunni. En þegar ég
ætlaði að troða ofan í hana
þerripappír, fór hún að
gráta."
Ung dama kom inn í verslun
eina hérna í bænum og bað
um flibba á föður sinn.
— Viljið þér hafa hann eins
og þann, sem ég er með?
spurði verslunarmaðurinn?
— Nei, ég vil fá einn hrein-
an.
KETTIRNIR
OG MÚSIN
Hvaða veg, nr. 1, 2, 3 eða 4
á músin að fara til þess að
komast inn í holuna sína,
en lenda ekki í vargakjöft-
um? Getið þið hjálpað
henni?
35