Æskan - 01.11.1979, Blaðsíða 53
GUMMt GtESARCee
Texti: Johannes Farestveit. — Teikn.: Solveig M. Sanden.
20. Eftir máltíðina, þá hina miklu, tók Gummi
til við að þreskja kornió í hlöðu kóngs. Hann
byrjaði á því, að taka mæniásinn úr hlöðunni
og gera úr honum þreskitré, en þegar hlaðan
eða þakið á henni var við það að falla inn, tók
hann stóran grenistofn og sperrti undir. —
Hann dó aldrei ráðalaus!
21. Að þreskingunni lokinni tók kóngur
Gumma tali: „Óvinaher er kominn inn í land
mitt. Nú ættir þú aö taka með þér nokkra her-
menn og reka óvinina út úr landi voru.“ — ,,Ég
mun gera það aleinn," svaraði Gummi. — ,,Ég
vil ekki að hermenn þínir verði fyrir meiðslum."
22. Því næst fór hann til smiðsins og fékk
hann til að smíða trékylfu handa sér. Hún vó
15 skippund, þegar hún var fullgerð. Því næst
þurfti hann að útvega sér stóran mal og var
hann búinn til úr 15 uxahúðum. Var malurinn
fylltur af kjarna-mat. — Þá var hann tilbúinn í
stríðið.
23. Þegar Gummi kom svo langt að hann gat
séð óvinina, settist hann niður til þess aö borða
nestið. ,,Svangur fer ég ekki í orrustu," sagöi
hann við sjálfan sig. í sama bili dundi skothríöin
og kúlur féllu allt í kringum Gumma gæsaregg.