Æskan

Volume

Æskan - 01.02.1980, Page 16

Æskan - 01.02.1980, Page 16
1. Það var einu sinni prins, sem var orðinn ákaflega þreyttur á hirðltfinu og í einu orði sagt, hann var leiður á því að vera prins. Hann langaði mest til þess að vera frjáls og geta gert það sem hann langaði til. Þess vegna tók hann sig til einn góðan veðurdag og hélt af stað út í veröldina. 2. Prínsinn hafði tekið með sér 2 pyngjur fullar af gullpeningum og alls staðar á leið hans varð fyrir hon- um fátækt fólk, sem hann gaf af sjóði sínum og að síðustu var allt gullið búið. 3. Þá seldi hann hestinn sinn og hinn glæsilega bún- ing, sem hann kiæddist. Hann var samt í ágætu skapi og hélt leiðar sinnar. Nú gat enginn séð annað en hann væri venjulegur förusveinn. 4. Þegar hann hafði ferðast svona í margar vikur, kom hann að krossgötum. Rétt við veginn var lítill bóndabær, við gerðið stóð gamall bóndi og var heldur ófrýnilegur á að líta. 5. Prínsinn var ekki viss um hvert halda skyldi, svo hann tók ofan höfuðfat sitt og spurði brosandi: „Hvora leiðina telurðu betri, afi gamli?" Við þetta varð sá gamli alveg æfur. sagði: „Ef þú hjálpar mér að tína eplin af trjánum í dag, skal ég segja þér hvert þú átt að halda." ÆSKAN er blað fyrir fólk á öiíu æviskeiði 14

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.