Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1980, Síða 18

Æskan - 01.02.1980, Síða 18
herklæði mín og vertu kóngur, ég hef engan áhuga á því. Enginn hefur séð andlit mitt, svo þetta gæti alveg eins hafa verið þú.“ Ungi kóngurinn varð nú aftur glaður, en prinsinn veglyndi kvaddi og flýtti sér af stað. 15. Þegar vondi riddarinn sá að hvíti riddarinn var enginn annar en konungssonurinn ungi, varð hann mjög reiður og ekki minnkaði reiði hans er fólkið hróp- aði og hyliti hinn unga konung sinn. 16. Prinsinn hélt nú leiðar sinnar. Hann ákvað að fara aftur til bóndabæjarins á krossgötunum. Gamli maður- inn var mjög reiður, en stúlkan sagði: „Þú ert víst dug- legri við að tína ber, en að varðveita það sem þér er trúað fyrir.“ 17. Prinsinn var ánægður með að tína berin með stúlkunni og þeim ieið vei þarna í sólskininu og voru í góðu skapi, en allt fór sem fyrri daginn, að allt í einu hvarf stúlkan og kom ekki aftur. 18. Morguninn eftir voru svört herklæði við rúmið hans og svartur gæðingur stóð fyrir dyrum úti. Húsið var mannlaust eins og fyrri daginn og í þetta sinn átti hann að fara til hægri, eftir veginum. 19. Prinsinn hafði ekki lengi farið, er hann kom að borg einni, þar sagði fólkið honum, að ef hann væri hugrakkur myndi hann geta eignast prinsessuna í ríki þessu, en hún var mjög fögur. 20. Þrautin lá í því að hann átti að drepa dreka einn mikinn, sem enginn þorði að leggja til við. 21. Drekinn hélt sig í helli einum miklum og þangað hélt nú prinsinn, og þegar hann kom inn í myrkrið í hellinum og drekinn sá augu sín spegiast í gljásvartri brynju prinsins, hélt hann að annar dreki væri kominn og varð hræddur. Þá var prinsinn ekki lengi að bregða sverði sínu og drepa hann. 22. Prinsinn færði kónginum nú höfuð drekans því til sönnunar, að hann hefði banað drekanum, og var kon- unur ekkert að tvínóna við það, en fór með prinsinn til herbergja prinsessunnar. ÆSKAN er eitt af elstu blööum, sem gefin eru út á íslandi í dag Gleymið ekki að tilkynna vanskil eða breytingar á heimilisfangi 16

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.