Æskan - 01.11.1980, Page 67
„BEINBROTAHLAUPIГ.
Fyrir fimm manna flokka. Fjórir
skátar úr hverjum flokki standa við
byrjunarstöðina með sjúkrabörur
(eða efni í þær) og þríhyrnur. Fimmti
skáti hvers flokks (,,sjúklingurinn“) er
í hinum enda herbergisins. Þegar
gefið er merki, hleypur hvert lið að
sínum „sjúkling", athugar veikindi
hans (sem er skráö á miða, sem er
festur á sjúklinginn), gerir aö sárum
hans og flytur hann að byrjunarstöð-
inni. Það lið, sem fyrst er að Ijúka
þessu á viðeigandi hátt, vinnur leik-
inn.
Ath.: Á miðanum gæti t. d. staðið.
— „Viðbeinsbrot hægra megin;
sjúklingurinn með meðvitund". — í
þessu ætti það lið að sigra auðveld-
lega, sem gerir sér grein fyrir því að
bera ekki viðbeinsbrotinn mann á
sjúkrabörum, því að það er eins gott
fyrir hann að ganga.
HVAÐ HEFUR BREYST?
Flokkunum eru gefnar 2 mínútur til
þess að setja á sig, hvernig fundar-
herbergið lítur út. Síðan fara skátarnir
út, en sveitarforinginn breytir ýmsu
inni svo sem opnar glugga, skiptir um
myndir, breytir klukkunni o. s. frv.
Svo er kallað á skátana og þeim
gefnar fimm mínútur til þess að gera
sér grein fyrir breytingunum.
Skátarnir gefa svo flokksforingjum
sínum skýrslu, en ekki sveitarforingj-
um. Flokksforingjarnir gefa svo
sveitarforingjanum skýrslu, þegar
leiknum er lokið.
Eitt stig er gefið fyrir hvert rétt nefnt
atriði, en tvö dregin frá fyrir hvert
rangt.
Orðið er úr Indíánamáli og þýðir hermenn af
ólíkustu ættflokkum koma saman til friðsamlegrar
samvinnu.
Jamboree merkir því Friðar- og bræðralags-
ráðstefna. „Allir skátar eru góðir lagsmenn — andi
vináttu og bræðralags á að ríkja manna á meðal.“
SKOTSKÍFAN
Mynd, sem ekki þarf skýringar
við.
LISTAMENN
Leikendur sitja hlið við hlið.
Ysti maður, hægra megin, byrjar að
teikna einhverja einfalda mynd. Síðan
kíkir sá næsti yfir öxl hans og reynir
að líkja eftir myndinni. Svona gengur
það koll af kolli, og að lokum eru allar
myndirnar bornar saman við þá
fyrstu.
BLINDANDI BOÐHLAUP
Flokkarnir standa í beinum röðum í
enda herbergisins og er bundið
fyrir augu fremsta skátans. [ hinum
endanum eru afmarkaðir hringir, einn
fyrir hvern flokk.
Þegar gefið er merki, fer blindingi
hvers fiokks með krít og á að merkja
kross í hring flokksins. Að því loknu
fer hann aftur til flokksins og næsti
skáti fer eins að blindandi.
Setji einhver kross utan við sinn
hring, þá er honum sagt það, og má
hann ekki snúa við fyrr en honum
hefurtekist að setja kross í sinn hring.
Flokkarnir mega segja sínum skát-
um til, eða hafa má leikinn þöglan.
fflBfflHaaHSHEi
53