Æskan - 01.05.1984, Blaðsíða 10
SVIÞJOÐ - AFANGASTAÐUR TVEGGJA
HEPPINNA ÁSKRIFTASAFNARA
Auðvitað munið þið öll - því
að ég er alltaf að endurtaka það
- að dregið verður úr
innsendum nöfnum í áskrifta-
söfnuninni og tveir safnarar
hreppa ferð til Svíþjóðar í verð-
laun. Það er aldeilis þó nokkuð!
Fyrir ykkur er gott til þess að vita
að enn eigið þið möguleika á
ferðinni - frestur til að tilkynna
nýja áskrifendur er til loka júní-
mánaðar. En nú er mál til komið
að gera ykkur betur grein fyrir
ferðaáætluninni.
HVERT LIGGUR LEIÐIN?
Flogið verður til Stokkhólms og
þar taka fulltrúar Ansvars, trygg-
ingafélags bindindismanna, á móti
söfnurunum heppnu og fylgja þeim
til gestaíbúðar fyrirtækisins. Þeir
verða ferðalöngunum síðan til leið-
sagnar og aðstoðar. - Stefnan
verður að sjálfsögðu fljótt tekin á
skagann Djurgárden. Þar eru safn-
og skemmtisvæðið Skansinn og
skemmtigarðurinn (tívolíið) Gröna
lund. Við skulum ekki áætla minna
en einn dag til þess að skoða
merka hluti og skemmta sér á
þessum vinsælu stöðum. - Á
Skansinum eru um 150 byggingar,
einkennandi fyrir fyrri tíð, frá ýms-
um svæðum í Svíþjóð. Þar vinnur
fólk að heimilisiðnaði eins og áður
tíðkaðist og selur gjarna minjagripi.
Dýragarður er á Skansinum og sæ-
dýrasafn, m. a. með fjölmörgum
tegundum sjávardýra úr hita-
beltinu.
Á sýningarpöllum koma fram
þekktir sænskir listamenn og
skemmtikraftar og þjóðdansar eru
iðulega sýndir þar. - í Græna lundi
eru alls kyns skemmtitæki og þar
gefst færi á að freista gæfunnar á
ótal vegu, eins og vera ber í fjöl-
breyttu tívolíi. - Skammt frá er
Wasa-safnið. Herskipið Wasa er
350 ára gamalt. Það fannst í Stokk-
hólmshöfn árið 1961 og hefurverið
gert upp sem líkast því er það upp-
haflega var. Wasa sökk í fyrstu ferð
sinni árið 1628,- Talið er að það
hafi gerst vegna þess að kjölfesta
hafi ekki verið nóg. - Fjölmörg
önnur söfn eru í Stokkhólmi. Fróð-
leiksfúsir ferðalangar finna þar án
efa safn við sitt hæfi. Nefna má
Þjóðminjasafnið, Póstsafnið, Um-
ferðarsafnið og Leikfangasafnið. í
því síðastnefnda eru yfir 6000
leikföng frá ýmsum tímum.
700 ARA GÖMUL BORG
Stokkhólmur er 700 ára gömul
borg. Gaman er að ganga um
þröngar götur í Gamla Stan, elsta
hluta borgarinnar, en þar eru marg-
ar fornar byggingar, m. a. kirkjur frá
13. öld. í jaðri Gamla Stan er kon-
ungshöllin. Ýmis söfn í höllinni eru
opin ferðamönnum, svo sem
Vopnasafnið, og varðmannaskiptin
í hallargarðinum laða marga að. -
Sjálfsagt er að njóta útsýnis yfir
Stokkhólm, annað hvort frá turni
Ráðhússins eða Kaknás-turni, en
það er hæsta bygging í Skandi-
navíu. - í nágrenni Stokkhólms er
margt markvert. Við skulum ekki
ákveða strax hvert leið verður lögð,
taka verður tillit til óska ferðalang-
anna. En eftir klukkutíma akstur í
norðurátt er komið að hinni frægu
háskólaborg Uppsölum. Þar er t. d.
grasasafn og hinn þekkti Linnaeus-
garður. Suður af Máren er Marie-
fred, vinsæll ferðamannastaður. I
Gripsholm-kastala þar í bæ er mál'
verkasafn með yfir 3200 rnyndum-
Á rúnasteinum getur að líta lýsingu
á því hvernig Sigurður lagði drek-
ann Fáfni að velli.
HVAÐ MUNIÐ ÞIÐ
Það er góður siður að leita ser
fróðleiks og rifja upp það sem þe9'
ar er vitað um það land sem ferð ef
heitið til. Gaman væri að vita hvað
lesendum kemur fyrst í hug þegar
Svíþjóð er nefnd. Ekki kæmi méra
óvart að það væri hljómsveit sem
notið hefur mikilla vinsælda
Abba. Reyndar hefur ekki heyrst
eins mikið til hennar síðustu mám
uði og nokkur undanfarin ár. Fvl
kann að vera að nafni heimsþekkts
kvikmyndaleikstjóra skjóti fyrr upP'
ekki síst þar sem hann f®^
Oscarsverðlaunin fyrir bestu er'
lendu kvikmyndina, Fanny og Ale*'
ander, nú í vor. - íþróttaunnendur
muna að sjálfsögðu eftir Ingmsr
Stenmark skíðakappa og Bjöm
10