Æskan

Årgang

Æskan - 01.09.1985, Side 18

Æskan - 01.09.1985, Side 18
áo Ný bók_________________ / þessum mánuði gefurÆskan út nýja skáldsögu eftirEðuarð lngólfsson, Sextán ára í sambúð. Hún er sjálfstætt fram- hald metsölubókarinnar Fimmtán ára áföstu sem kom út ífyrra. Bókin fjallar um sömu aðalpersónur, þau Áma og Lísu. Þau eru farin að búa þó Útdráttur að ung séu að árum og Lísa er ólétt. Hún stundar nám áfyrsta ári í menntaskóla en hættir þuí um áramótin uegna bamsfæð- ingarinnar. Ámi hefurhins ueg- arfrestað öllu framhaldsnámi um óákueðinn tíma og starfar í uerslun. — Hér uerður gripið niður í 2. kafla sögunnar: úr nýrri bók eftir Eðvarð Ingólfsson Sextán ára í sambúð Sextán ára stelpa sem hét Maríanna, kom til starfa í búðinni þennan dag. Hún var ráðin til þess að vera á kassanum fyrir hádegi en í ^endla- störfum eftir hádegi. Áður hafði Árni séð einn um sendlastörfin á tveim jafnfljótum en komst ekki yfir að sinna þeim sem skyldi því að um- svifin á lagernum höfðu aukist mik- ið. Einnig var í hans verkahring að sjá til þess að ekkert vantaði fram í búðina og raða í hillur. Ekki fór á milli mála að þessi Maríanna var meiriháttar aðdáandi hljómsveitarinnar Duran-Duran. Hún var í bol með barmmerki hljóm- sveitarinnar og í sokkum merktum henni. Þegar Árni kom inn í kaffiherberg- ið síðar um daginn sat Maríanna þar fyrir. Hún var að lakka neglur sínar og blés ótt og títt á fingurna. — Hvað heitirðu aftur? spurði hún án þess að líta upp þegar hann settist við borðið með kaffiglas. - Árni. Hann var hálffeiminn. — Alveg rétt, ég heyrði það í morgun. Fallegt nafn. - Það má nota það, sagði hann í hógværð sinni. Hann var að hugsa um að segja henni að sér fyndist Maríanna líka fallegt nafn en kunni ekki við það. Það var svo hallærislegt eins og hann væn að endurgjalda hrósið. Hún hélt áfram að lakka og lét nærveru hans ekkert á sig fá, hafði greinilega mikið sjálfstraust. Hann horfði á hana útundan sér, tilbúinn að renna augunum í aðra átt ef hún liti upp. Maríanna var algjör súkkulaðipía, ein af þeim sem strákar verða bál- skotnir í við fyrstu sýn. Hún var með falleg, gráblá augu og ljósar lamba- krullur niður á herðar, hafði líklega fengið sér permanent. Hún var brún eftir lampaljós og hafði mjallahvítar og beinar tennur. Lísa var líka súkkulaðipía - en öðruvísi. Allt í einu skammaðist Árni sín fyrir að vera að bera þær saman, fannst eins og hann hefði ekki leyfi til að dást að annarri stelpu. Lísa var hans og stóð fyrir sínu. Maríanna lauk við að lakka, virti hendurnar fyrir sér og hélt fingrun- um aðskildum svo lakkið klístraðist ekki. — Ég sé að þú heldur með Duran- Duran, sagði hann og kímdi. — Þeir eru bestir, alveg frábærir. Hún dró enga dul á það. - Ertu nú viss um það? Hann langaði að stríða henni dálítið. Hún leit upp frá puttavaktinni og starði undrandi á hann. Augun stækkuðu um helming. Að hann skyldi voga sér að vefengja það, las hann út úr svipnum. — Með hvaða hljómsveit heldur þú? spurði hún varfærnislega. Honum var skemmt. - Ég held með Wham! skrökvaði hann. — Wham! hrópaði hún eins og það væri það skelfilegasta sem hægt var að hugsa sér. - Trúirðu því ekki? Hann gat ekki stillt sig um að glotta. Hún horfði andartak í augu honum. — Glætan! Þú ert að skrökva, ég sé það á augunum. Hann hló — vildi ekki kvelja hana lengur. 18

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.