Æskan - 01.04.1987, Page 21
^jjjgmáhniíí
Karaíe.
hnatíspyma og
saetar stelpur
híett við Elías Kr. Þorsteinsson
n Etear Kristjáns kom upp þeg-
Vlð drógum eitt nafn úr penna-
/; nadálkinum. í bréfi sínu skýrði
áhu ^ann hefði mikinn
u 8° á karate, knattspyrnu og sæt-
fo Ste^Um' Okkur langaði til að
0pV,ltnast nánar um þessi áhugamál
$lirrtn&dum því til hans upp á
aga þar sem hann á heima.
Ak *aS ^r*stj^n hefur átt heima á
ranesi frá því að hann fæddist.
Ijuk11 Ver^ur nra núna í júlí og er að
Utll a bekk í Grundaskóla. Við báð-
^hu ”ann lyrst lýsa fyrir okkur
§a sínum á karate.
Verið^Stlr min’ sem er ^ ara’ l16^1
ka kenna mér ýmis brögð,“ sagði
ar ■ »Hún hefur lært karate í nokkur
að'íf -6r me^ hvíta beltið. Hún stefnir
^ún - ^a beltið líka. Núna er
inni 1 Englandi að læra meira í íþrótt-
hjj , ^ÍHnig er hún að læra svonefndar
u. ^i®kningar. Þær eru til þess að
*na bakverk.“
^er hún létt með þig í karate?
foð 3’ ^Un tuskar mig til. Ég hef ekki
henni því að hún kann svo
nesi9Er hægt að læra karate á Akra-
er”^e*> ekki svo að ég viti til. En það
ekij ®®1 aA læra það í Reykjavík og
ske ,traleitt að ég sæki þangað nám-
^ áður en langt um líður.“
ti| , .^darðu þá að nota kunnáttuna
þig? iunibra á öðrum eða til verja
„Bara til að verja mig. Karate er
varnaríþrótt.“
— Hvað geturðu sagt okkur af
knattspyrnuáhuga þínum. Æfirðu með
Í.A?
„Já, ég byrjaði að æfa með 5. flokki
í haust. Ég hef mjög mikinn áhuga á
knattspyrnu. Ég leik oftast á miðju.
Fyrir skömmu var haldið bekkjamót í
knattspyrnu og þá lék ég með bekkn-
um mínum.“
— Ertu í aðalliðinu?
„Nei, en ég vonast til að komast í
það í sumar.“
— Hefurðu sérstakt dálæti á ein-
hverjum knattspyrnuhetjum?
„Já, ég er hrifnastur af Pétri Pét-
urssyni og Ásgeiri Sigurvinssyni."
- Gætirðu hugsað þér að verða at-
vinnuknattspyrnumaður?
„Já, ég væri alveg til í það.“
— Æfirðu einhverjar aðrar íþróttir?
„Já, ég hef verið í frjálsum íþrótt-
um, bæði að hlaupa og stökkva.“
— Fylgistu eitthvað með handknatt-
leik?
„Já, ég horfi á hann í sjónvarpinu.
Eftirlætisleikmaður minn er Kristján
Arason.“
Áttí kærastu
Elías segir að það sé ágætt að eiga
heima á Akranesi, margir krakkar séu
ágætir en svo séu aðrir grautfúlir en
hann skipti sér lítið af þeim. Hann var
í KFUM (Kristilegu félagi ungra
manna) en er hættur. Honum þótti
gaman í félagsskapnum. Það var farið í
ýmsa leiki á fundum, sagðar sögur og
farið í ferðalög.
í skólanum þykir Elíasi skemmti-
legast að læra heimilisfræði. Stundum
fær hann að búa til mat heima við.
Einu sinni bjó hann til spagettírétt og
brauð til að hita í ofni. Svo hefur hann
búið til grjónagraut og steikt egg.
Honum finnst gaman að búa til mat.
Sjálfum þykir honum best að borða
hangikjöt — og ís og ávexti í eftirrétt.
En þá eigum við aðeins eftir að
spyrja hann um atriðið sem hann
nefndi í pennavinadálkinum sem
þriðja og síðasta áhugamál, — sætar
stelpur.
„Nei, það eru ekki margar sætar
stelpur á aldur við mig hér á Skagan-
um,“ segir Elías blaðamanni. „Það er
frekar að eldri stelpur séu sætar. Ég
átti einu sinni kærustu. Hún hét He-
lena og vissi vel af því að hún væri
kærastan mín. Krakkarnir hér á Akra-
nesi byrja ekki að vera saman fyrr en
þeir eru orðnir 13 ára.“
- Hlakkarðu til að verða þrettán?
„Já, ég held að það sé betra en að
vera 11 ára.“
— Viltu segja eitthvað að lokum?
„Já, ég vona bara að ég fái marga
pennavini.“
- Þakka þér fyrir spjallið, Elías
Kristján, og vonandi verður þér að ósk
þinni!
Að síðustu birtum við heimilisfang
hans. Það er:
Elías Kr. Þorsteinsson,
Garðabraut 19,
300 Akranesi.
21