Æskan - 01.04.1987, Blaðsíða 42
Einhverjar hröðustu breytingar
á íslensku þjóðlífi dynja nú yfir
okkur. Við höfumfengið nýja
sjónvarpsrás að horfa á, nýjar
útvarpsrásir að hlusta á, tilboð
hér og tilboð þar sem eiga að
grípa huga okkar og tíma. Enda
er svarið sem við gefum hvert
öðru, þegar við erum beðin ein-
hvers, stundum þetta: „Eg hef
ekki tíma“. Það er oftast afþví
að við gleymum því að aðrir
þarfnast okkar og við jafnvel
þeirra.
Er hann í heimilisaltarinu?
Sennilega eyðum við nú sífellt meiri
tíma í að tilbiðja heimilisaltarið (sjón-
varpið) og lokum okkur þar með frá
umhverfinu og höfum síbylju (glymj-
andi) allra útvarpsrásanna stöðugt í
eyrunum (sumir raunar bókstaflega
með vasatæki). Þá heyrum við aldrei
þögnina eða kallið frá þeim sem þarfn-
ast okkar þá og þá stundina. „Allt er
gott í hófi“ segir máltækið og á það
ekki hvað síst við nú á dögum.
Er hann við hlið þér?
„Maður er manns gaman“ segir enn
eitt máltækið. í þeim orðum felast þau
sannindi að maðurinn er félagsvera
eins og það heitir á máli fagmanna og
þarf að vera í tengslum við annað fólk,
augliti til auglitis. Það er líka kallað að
lifa í samfélagi við aðra menn, það
verður ekki gegnum sjónvarp / mynd-
og hljómbönd / síbylju kveðjusend-
inga í útvarpi o.s.frv.
Nú þykir þér ég kannski vera farinn
að skrifa eins og rammasti afturhalds-
seggur en lestu áfram og pældu í því
sem á eftir fer.
Viltu hafna honum?
Ég ætla að koma með stutta s '
ingu á hvað ég á við. ðuf
„Sá sem elskar peninga ver ^
aldrei saddur af peningum og sa s '
elskar auðinn hefur ekki gagn af 11
um. Einnig það er hégómi. Par s^.,
eigurnar vaxa þar fjölgar þeim e'nj,
þeim og hvaða ábata hefur eigan *,.•
af þeim annan en að horfa á P&'
(Préd. 5:9-10) á
Finnst þér textinn erfiður? ?a u.
setja næstum hvað sem er í stað P
inga sem dæmisagan nefnir. Hér k
ur hugsanleg útskýring: .
Viljir þú dunda við að gera e ^
neitt, t.d. að glápa á hverja dellun^f
fætur annarri í heimilisaltarinu,sa •.
þú í digran sjóð þinn fjölda tel'
mynda, hasarmynda, dægurtómlS
o.s.frv. En veltu því fyrir þér h' ,
gefur það þér í staðinn? Aðeins Pa°
þú þarft að fá meira til að safna 1 eI
digrari sjóð en þú átt fyrir.
42