Æskan - 01.10.1989, Page 17
einu einasta orði.
Svo byrjuðu tárin að renna
niður kinnarnar á honum.
Báturinn hafði heitið Njörður
en var nú kominn með
annað nafn.
A báðum kinnungum bátsins
stóð nafnið LÁSI
með stórum, svörtum stöfum.
Lási horfði á Togga,
en sá hann ekki fyrir tárum.
Hann opnaði munninn
til að segja honum leyndarmálið,
til að segja honum
að hann, Lási, væri svikari,
hann væri hrekkjusvínið
sem hefði einu sinni
ráðist á bátinn hans.
Hann opnaði munninn
en kom ekki upp orði
fyrir gráti. . . .
jíann kreppti hnefana.
Peir skyldu sko bara reyna . .
^ási sat uppi í glugga
horfði út á sjóinn.
jíann gat ekki sofnað.
U$sta morgun ætlaði Toggi
^ fara út og leggja netin.
^ási vildi fara með
r°ggi bannaði honum
skrópa í skólanum.
" Ég vil enga
sKrópa-gemlinga,
Sagði Toggi ákveðinn.
. H mátt fara með
? ^Ver)um degi
Pegar skóhnn er búinn.
§ þar við sat.
^ara að skólinn væru búinn!
Érófin gengu ekki vel
8 vitnisburðurinn var ekkert
| að hrópa húrra fyrir.
> Éegðun fékk hann samt
VIÖUNANDI
o^T^aÉði alltaf fengið
illir VINNUFRIÐI.
að verður áreiðanlega
s^a Ur úr honum Lása mínum,
8ði amma þegar hún sá
að hann hafði bætt sig í hegðun.
Hún var komin með
eldrautt hár,
hætt við það fjólubláa.
Lási sjálfur var glaður
og honum leið vel.
Hann var hættur
að stríða krökkunum
og orðið HREKKJUSVÍN
heyrðist ekki eins oft og áður.
Pabbi hans hringdi ekki
en það var líka allt í lagi
því að Lási var hættur
að búast við því.
Hann hafði heldur engan tíma
fyrir pabba sinn lengur ....
Svo rann upp dagurinn
þegar skólinn var búinn
og Lási fékk í fyrsta sinn
að fara með Togga
að vitja netanna.
Sólin skein á sjóinn
og jökullinn
var næstum alveg hjá þeim.
Lási hljóp niður í fjöru.
Þar snar-stansaði hann.
Hann horfði á bátinn
en gat ekki komið upp
En þá lagði gamli maðurinn
fingurinn á munninn:
- Ég hef vitað þetta
allan tímann, góði minn,
sagði hann.
Og hann rétti Lása höndina.
Svo lögðu þeir af stað.
Og á meðan þeir sigldu
yfir hafið
og stefndu á jökulinn
óskaði Lási þess
að þetta andartak
mætti vara að eilífu.
Sögulok.
Æskaai 17