Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1989, Síða 43

Æskan - 01.10.1989, Síða 43
um stað en helsta breytingin er á hugarfar- inu. Hér hugsa menn bara um knattspymu - lífið snýst um knattspyrnu; hún er það sem menn lifa á. Menn verða að hugsa vel um sjálfa sig því að líkaminn er atvinnutæki þeirra. Hvemig tóku leikmenn Nottingham For- est þér? Þeir tóku mér mjög vel. Þetta em mjög vin- gjarnlegir og hressir náungar. Klúbburinn er líka mjög vinalegur, í raun fjölskyldu- klúbbur. Allir em félagar, allt frá þvotta- konunni til forseta félagsins. Hver er eftirlætisknattspyrnumaður þinn? Pétur Pémrsson hefur alltaf verið í miklu dálæti hjá mér. Hann er mjög skemmtileg- ur leikmaður. Á yngri árum dáðist ég mikið að Kevin Keegan. Á móti hverjum hefur þér þótt erfiðast að leika? Þeir em margir en hvað erfiðast hefur mér fundist að leika gegn Ormari bróður mín- um. Þess vegna varð ég mjög feginn þegar hann byrjaði að spila aftur með okkur KA- mönnum. Hvaða áhugamál áttu önnur en knatt- spymu? Eg er mikill áhugamaður um góðar kvik- myndir, tónlist og auðvitað aðrar íþrótta- greinar én knattspyrnu, til að mynda tennis og skíðaiðkun. Hverjir em eftirlætistónlistarmenn þínir? Af erlendum tónhstarmönnum em það hljómsveitirnar Smitth, U2, Simple Minds og Dire Straits. Af þeim íslensku er Egill Ólafsson söngvari í miklu dálæti hjá mér. En leikarar? Þórhallur Sigurðsson, Harrison Ford, Eddy Murphy og Mickey Rourk. Hefur þú lært á hljóðfæri? Já, ég lærði á kornett í fimm eða sex ár. Tókstu þátt í einhverju félagsstarfi á ungl- •ngsárum? Já, í KA og Skíðaráði Akureyrar. Þar var frábært félagsstarf og sá tími er ógleyman- legur. Geturðu sagt okkur frá skemmtilegu atviki er gerðist á bams- eða ungUngsárum þín- um? Ég er mjög tapsár. Ég veit varla annað verra en að tapa. Eitt sinn á yngri ámm mínum vorum við systkinin og foreldrar mínir að leika knattspyrnu. Það gekk ekki betur en svo að ég tapaði. Ég var ekkert yfir mig ánægður svo að ég ákvað að fara að heiman. Eg tók mig til og labbaði út á klappir sem eru rétt hjá heimili mínu, lagðist þar fyrir °g ákvað vera þar og fara aldrei heim aftur. hegar fór að dimma og kólna og verða frem- Ur draugalegt gafst hetjan mikla upp og hljóp heim tíl pabba og mömmu með skott- á milli fótanna. Ég lofaði að fara aldrei að heiman aftur en ég held að ekki hafi liðið nema vika þangað til sá tapsári ákvað að fara að heiman og koma aldrei aftur. . . Hver er eftirlætisréttur þinn? Ejötbollur með brúnni sósu, kartöflu- stöppu og rabbarbarasultu - matreitt af 1 móður minni. | Á hvaða dýrum hefur þú mest dálæti? 1 Hundum. i Áttu eftirlætismálshátt? Enginn verður óbarinn biskup. i Lestu mikið? Hvernig bókmenntir helst? i I meðallagi. Einkum spennusögur - og | ljóðabækur nú seinni árin. | Hver er eftirlætishöfundur þinn? En bók? i Sverrir Páll Erlendsson - og ljóðabók hans | Ég og heima. I Hverjir finnst þér helstu kostir fólks? Heiðarlegt og vinalegt fólk er það sem mér | líkar best við. i Hvað í fari fólks fer mest í taugamar á | þér? i Tvöfeldni. Fólki, sem hana iðkar, er aldrei i að treysta. | Hvers þurfa þeir sem vilja ná góðum ár- | angri í íþróttum helst að gæta? % Til að ná árangri þarf alltaf að leggja sig fram | - stunda æfingar samviskusamlega og i reyna að æfa meira en aðrir, samt skipu- lega, og fara vel með sjálfan sig. Þó að allt gangi ekki strax að óskum þýðir ekkert að gefast upp; maður verður að halda áfram. Þá er gott að hafa eitthvert takmark til að stefna að. Þrátt fyrir allt er mikilvægast að hafa gaman af íþróttinni. Ekki má heldur gleyma því að stutt er á milli hláturs og gráts í íþróttum og oft verða vonbrigði mikil. Þá reynir á mann að bíta á jaxlinn, anda með nefinu og halda áfram. . .! Með kærri kveðju, Æskan 43 „. . . en ég held að ekki hafi liðið nema vika þangað til sá tapsári ákvað að fara að heiman og koma aldrei aftur. . .“ >t>í

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.