Æskan - 01.06.1994, Page 7
Hildur Harðardóttir 8 ára,
Skútahrauni 20,
660 Reykjahlíð við Mývatn.
Á hvaða dýrum hefur þú mest dá-
læti?
Hundum.
Áttu dýr?
Nei, en afi og amma eiga kött og ís-
lenska tík sem ég fæ oft að passa
og leika mér við. Hún heitir Kola og
er besta vinkona mín.
Hvað finnst þér um dýravernd:?
Mér finnst að það megi ekki eyða
skógunum í heiminum því að hann
er heimkynni margra dýra sem án
hans myndu deyja út. Ég vil láta
vernda öll dýr sem eru í útrýmingar-
hættu.
Ertu hrædd við eitthvert dýr?
Nei, ekkert sem ég hef verið nálægt.
Erla Egilsdóttir 10 ára,
Miðgarði 2, 740 Neskaupstað.
Á hvaða dýrum hefur þú mest dá-
læti?
Köttum.
Áttu dýr?
Já. Það er feitt, það er loðið og al-
veg eins og þvottabjörn en samt
köttur!
Hvað finnst þér um dýravernd?
Hún er góð. Það á að vernda dýrin.
Ertu hrædd við eitthvert dýr?
Nei.
SPURT Á LEIÐ UM LANDID:
Guðmundur Árni Hannesson
13 ára,
Bylgjubyggð 43, 625 Ólafsfirði.
Hvað starfar þú í sumar?
/ bæjarvinnunni - við að tína rusl,
mála, slá garða og margt fleira.
í hvaða skóla ferðu í haust?
Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar.
Hver er eftirlætisnámsgrein þín?
Leikfimi.
Hvaða starf langar þig mest til að
stunda í framtíðinni?
Atvinnuknattspyrnu.
Lára Guðlaug, á tíunda ári,
Ásgarði 6, 740 Neskaupstað.
Hver er helsti kosturinn við að eiga
heima á Neskaupstað?
Það ersvo mikill friðurþar.
Fylgir því nokkur ókostur?
Nei.
Hver er fallegasti staður sem þú
hefur komið á?
Þingvellir.
Hefur þú ferðast víða um ísland?
Nei, ekki mjög víða.
Þessir krakkar voru í sveit að Auðkúlu í Svínadal í Austur-Húnavatnssýslu. Sól
skein og veður var hlýtt. Þeir ætluðu að fara að vaða í polli skammt frá bænum
og höfðu með sér svaladrykk í stórri flösku. Ég spurði þá hvort þeim þætti
gaman í sveitinni. Þeirsvöruðu að bragði: „Já, rosalega."
Talið frá vinstri: Guðrún Erla, á tíunda ári, Helga Sjöfn 11 ára, Bylgja 10 ára og
Hjalti Bergmann 11 ára.
Æ S K A N 7