Æskan - 01.06.1994, Síða 12
FRÁ UNCLINCARECLUNNI
BERLÍNARFERÐ
UNCMENNA5TÚKUNNAR
EDDU
FERÐASAGA EFTIR INCiU MARÍU, KRISTÍNU OC ERNU.
MYNDIR: ÞÓRHALLUR STÍCSSON
Við lögðum af stað 20. júlí í sumar
frá Vinabæ í Reykjavík. Við vorum
18: fimm stelpur, sex stálpaðir strák-
ar, fimm fullorðnir og tveir sjö ára
strákar. Við stönsuðum fyrst á
Blönduósi og grilluðum pylsur í
garðinum hjá Stebbu, systur Jónu
fararstjóra. Síðan var ekið í nánast
einni lotu til Seyðisfjarðar. Þar sváf-
um við í félagsmiðstöð.
Morguninn eftir var farið um borð
í Norrænu sem sigldi til Esbjerg í
Danmörku. Þaðan fórum við í rútu til
Berlínar. Gísli bílstjóri hafði tekið
hana með í ferjunni. Við komum
þangað um klukkan átta að morgni
25. júlí.
í Berlín var haldið alþjóðlegt mót
templara. Við reistum tjöld á stóru
tjaldsvæði. Þar sáum við fólk frá
mörgum löndum og á öllum aldri.
Ýmiss konar viðburðir („uppákom-
ur“) voru á svæðinu og um það var
ekið járnbrautarlestum. Ekkert kost-
aði að fara með þeim.
í nágrenninu voru verslanir sem
við stelpurnar vorum mikið í af því
að þar var kaldara en úti. Við vorum
svo óheppin að hitabylgja var í Evr-
ópu meðan við vorum þarna.
Á mótinu áttu að vera íþróttir en
þeim varð að mestu að sleppa
vegna hitans. En við gerðum okkur
margt til gamans. Við fórum t.a.m. í
tívolí og skemmtum okkur konung-
lega í næstum fimm klukkustundir! í
því voru risastór rennibraut („rússí-
bani“), töfrateppi, parísarhjól, fjöl-
leikahús o.m.fl.
Á mótssvæðinu var mikið af geit-
ungum. Þeir stungu marga en við
stelpurnar sluppum alveg.
Eftir mótið ókum við aftur til Dan-
merkur. Við sigldum með Norrænu
til Færeyja. Þar dvöldumst við í tvo
daga í boði færeyskrar ungmenna-
stúku. Við skoðuðum okkur dálítið
um og gistum í félagsheimili. Þar var
snókerboró svo að við gátum haldið
keppni. Auðvitað vann einn af strák-
unum.
Þriðja ágúst sigldum við enn af
stað með Norrænu og komum til
Seyðisfjarðar klukkan sjö að morgni
4. ágúst. Við fórum eystri leiðina til
Reykjavíkur. Að Vinabæ ókum við
Enn hér heima -
Erna, María Sif, Kristín, Elva Rós, Albert.
um hálfellefu um kvöldið. Það voru
þreyttir ferðalangar sem stigu út úr
rútunni við komuna þangað. Allir
voru fengnir að koma heim og höfðu
fengið nóg af hita um sinn. En ferðin
verður minnisstæð því að hún var
mjög skemmtileg.
(Ferðasagan er sett saman úr
tveimur frásögnum. Inga María ritaði
aðra en Kristín og Erna hina).
/ tívoliinu i Beriin:
Davið Svanur, Karl Ingi,
Albert Þór, Stefán Þór
(baksvipur), Hlynur Freyr.
I barnaheimilinu á
mótsstað. Æft fyrir
fjölleikasýningu.
Dönsk stúlka, þýsk
forstöðukona, stúlka
frá Úkraínu.
7 2 Æ S K A N