Æskan - 01.06.1994, Síða 20
J-i
RÚNAR OG ARNAR MEÐ AÐRA PLÖTU
JJjA_L)Jli DJjJIjJ Jjj
Við sögðum frá þessum vinsælu
bræðrum í 8. tbl. 1993 og síðan haf-
ið þið getað fylgst með þeim í öðrum
fjölmiðlum - og jafnvel sótt hljóm-
leika þeirra í Reykjavík, á Akureyri og
Egilsstöðum. Hér bætum við þó dá-
litlu við:
Rúnar og Arnar hafa
komið fram í vinsæl-
ustu skemmtiþáttum
sjónvarpsstöðva í Nor-
egi og íslandi! Þeir
hafa haldið hljómleika
á a.m.k. 60 stöðum í
Noregi auk þriggja á
íslandi og tekið þátt í
öllum stærstu tónleik-
um popplistamanna í
Noregi í sumar og
haust. Fyrsta plata
þeirra náði „gull“-sölu í
báðum löndunum.
í blöðum þar ytra
hafa verið fyrirsagnir á
borð við þessar:
Glæsileg byrjun
hjá „The Boys“!
„Gulldrengirnir
heilluðu stúlkurnar“
„„Drengirnir"
skyggðu á alla!“
í einu blaðinu sagði:
„Þegar „The Boys“ stigu niður af
sviðinu hafði þegar myndast löng
röð aðdáenda sem biðu eftir eigin-
handaráritun. Þessir vinsælu ís-
lensku drengir áttu ekki síst þátt í því
að Express gat skráð aðsóknarmet
á Feviks-tónleikana."
HÖFUM SAMIÐ NOKKUR
LÖG SJÁLFIR
í júnílok var viðtal við strákana í
norsku dagblaði. Þá var von á plöt-
unni innan hálfs mánaðar:
„Á nýju plötunni verður sams kon-
ar músík og þeirri fyrstu en nú tök-
um við fyrir lög sem meira reynir á
okkur við að flytja," segir Rúnar.
- Eruð þið þá orðnir betri en í
fyrra?
„Já, við höfum æft töluvert síð-
an,“ svarar Arnar.
Blaðamaðurinn, Anna Olaug
Steinvik, segir að þeir hafi verið að
leika knattspyrnu þegar hún kom og
hópur aðdáenda hafi fylgst með
þeim ...
„Það er bara gaman að hafa
steipurnar hérna,“ segja þeir þegar
hún spyr hvernig þeim líki það.
Anna lýsir því að þeir hafi fengið
tíu þúsund aðdáendabréf og öllum
hafi verið svarað. Þeir hafi haldið
hljómleika um allan Noreg og leggi
brátt af stað í aðra ferð.
„Það hefur verið gaman að ferð-
ast um og við höfum séð margt,“
segir Rúnar. „Ég hlakka til að fara af
stað aftur.“
Þetta verður fjölskylduferð. For-
eldrar þeirra fara með og tryggja að
hún verði ánægjuleg.
- Eruð þið orðnir sjálfsánægðir af
að vera poppstjörnur?
„Það held ég ekki. Við
erum bara að leika og
syngja lög og það er ekki
það mikilvægasta af öllu.
í skólanum koma allir
fram við okkur eins og
áður,“ segir Arnar.
„Getur þú merkt að við
séum orðnir montnir?"
spyr Rúnar.
Nei, þeir eru eins og
hverjir aðrir strákar,
fjörugir og gamansamir
en kurteisir og faðma mig
þegar ég kem og fer. Þeir
taka „stjörnudýrkunina"
ekki hátíðlega.
Til þessa hafa þeir ein-
ungis sungið lög eftir
aðra ...
„Við höfum samið
nokkur lög sjálfir, kannski
syngjum við þau einhvern tíma á
plötu. Þau eru í líkum dúr og lögin
sem við syngjum núna,“ segir Rúnar
og bætir við að það sé gaman að
semja lög.
Platan er væntanleg í verslanir hér
í september.
Minna má á að aðdáendakúbbur
starfar:
The Boys,
Postboks 214, 3942 Skjelsvik,
Noregi.
2 0 Æ S K A N