Æskan

Árgangur

Æskan - 28.01.1902, Síða 2

Æskan - 28.01.1902, Síða 2
30 inu auðugri að góðum hugsunum, trú á guðs föðuikgerleik og allt, sem er gott og fagurt? Betur að svo væri, því ef þið haldið þannig áfram, er enginn efi á því, að þið munið verða gæfusöm, þegar þið komist á fullorðins aldur. Munið eftir því, að þó nauðsynlegt sé, að hafa nóg fyrir sig að leggja og njóta trausts og virðingar annara, er það alls ekki skiiyrði fyrir gæfu, að safna miklum auði eða komast til hárra metorða. Sá er vanalega gæfusamastur, sem geiir verk sitt vel, í hvaða stöðu sem hann er stadd- ur. Og vinnumaðurinn og vinnukonan geta verið sæmdaiménn engu síður en em bætti sm aðu rinn. Vér sjáum hér á meðal vor börn, sem eru leidd afvega, sem breyta þvert á móti boðum guðs og manna. Varist dæmi þeirra, þvi það leiðir til ógæfu. En fyrír- lítið þau ekki. Biðjið guð fyrir þeim, að þau bæti ráð sitt og verði að betri mönn- um. Því ineð guðs hjálp geta þau orðið það enn. Varið yður á slæmum félagsskap, og ef þið sjáið eitthvað gert sem ósæmilegt. er, þá leynið því ekki, ef þið getið ekki af- stýrt því. Munið eftir því, í aliri hegðun yðar, að altsjáandi auga guðs vakir yfir yður og sér alt sem þið gerið, hvort það er heldur gott eða ilt. Ameríkufarinn. Niðurlag. ---- Elzti sonurinn, sem hét Frits, var frammi við dyrnar, og hélt i bæði eyrun á stórum hundi, sem kallaður var Boll, og reyndi að sefa hann; hundurinn kunni iila við allan þennan hávaða úti fyrir, hann var si-urr- andi og lét mjög ófriðlega. „Vertu rólegur, Boll, þeir skulu ekki selja jiig “. Ráðhúsþjónninn kom nú inn. Það var gamall og góðlegur maður, og hafði hann oft áður opnað ráðhúsdyrnar fyrir Her- manni og hneigt sig fyrir honum. Nú kom hann í öðrum erindagjörgum, og var auðséð á honum að honum féil það þungt. „Eg er komin til að sækja hægindastól- inn, herra ráðherra," stamaði hann. Hermann leit undan og andvarpaði: „Það er hart; en verði guðs vi]ji.“ Hægindastóllinn var klæddur grænu flau- eli, og hafði faðir Hermanns setið í hon- um síðustu augnablikin, er hann lifði, og þegar hann hafði lýst blessun sinni yfir syni sínum. Hann hafði alt til þessa ver- ið álitinn gersemi ættarinnar. Nú var hann borínn út og Hermann kom ósjálfrátt á eftir ásamt konu sinni og börnum. Frits kom seinastur með Boll. „Númer 120!“ hrópaði uppboðshaldarinn. „Hægindastóh í ágætu standi, flauels- klæddur!" En enginn vildi bjóða. Það var dauða- þögn í salnum, og ailir horfðu jsangað, sem húsfaðirinn og fóik hans stóð. J.oksins kallaði feitur og digur slátrarf með skerandi rödd: „Fjögur mörk!“ „Fjögur mörk; Fyrsta sinn! — Býður enginn betur?“ hrópaði uppboðshaldarinn. í sama bili varð Boil alveg hamsiaus, reif sig lausan og hljóp út úr dyrunum.

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.